fbpx
Miðvikudagur 17.desember 2025
Fréttir

Einar: Athyglisverð veðurspá næsta sólarhringinn – Skafbylur í höfuðborginni í kvöld

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 27. febrúar 2020 08:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og höfuðborgarbúar hafa eflaust tekið eftir hefur snjóað talsvert á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur sem heldur úti vefnum Blika.is, segir að þessi úrkomubakki hafi komið aftan að okkur.

„Leit út fyrir að skila einkum úr sér í Ölfusi og austur með Reykjanesi.  En svona er þetta oft í kalda loftinu  á útmánuðum, smálægðir og snjókomubakkar spretta upp eins og gorkúlur,“ segir Einar í frétt á vefnum í morgun.

Hann segir að spáin næstu 24 tímana sé allrar athygli verð. Hann birtir tunglmynd Veðurstofunnar frá því klukkan sjö í morgun og segir að úrkomubakkarnir séu tveir. „Annar göndull kemur í kjölfarið sýnist manni og þá með snjó trúlega eftir hádegi,“ segir hann og bætir við að það hvessi auk þess sem snjórinn er þurr og léttur. „Skafbylur verður líklega á leiðinni austur yfir fjall frá miðjum degi og á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum nægur vindur í talsverðan skafbyl í kvöld.“

Gul viðvörun er í gildi á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa, Suðausturlandi og Miðhálendi. Á höfuðborgarsvæðinu er spáin í gildi til klukkan fjögur næstu nótt. „Austan 13-20 m/s, með vindhviður allt að 30 m/s í efri byggðum, á Seltjarnarnesi og við norðurströndina. Snjókoma eða skafrenning og á köflum lítið skyggni. Ökumenn fari varlega,“ segir í viðvöruninni.

Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að rysjótt veður verði næstu tvo sólarhringa. „Víða allhvöss eða hvöss austanátt, stormur eða rok syðst í dag og á Suðaustlandi á morgun. Snjókoma með köflum eða skafrenningur á sunnanverðu landinu í dag, en úrkomulítið fyrir norðan. Snjókoma eða slydda á austanverðu landinu á morgun og fer að rigna við ströndina um kvöldið, en annars dálítil él og dregur úr frosti. Á laugardag lægir loks og rofar víða til, en áfram slydda eða rigning með austurströndinni og hríð á Vestfjörðum. Gular veðurviðvaranir eru í gildi og því um að gera að fylgjast vel með veðurspám og færð áður lagt er af stað í ferðalög.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Í gær

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin