fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fréttir

Nýjar vendingar í máli Guðrúnar og Aras: Eru sættir að takast? – Sagður trúlofaður annarri konu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 3. janúar 2020 16:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skilnaðardómsmál Guðrúnar Benediktsdóttur og íraska Kúrdans Aras Nasradeen Kak Abdullah er á dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur næstkomandi þriðjudag. Mun Guðrún þar krefjast lögskilnaðar frá Aras enda er hann fyrir löngu fluttur út frá henni og hún hefur hann ekki augum litið í heilt ár. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum DV er sáttatónn í lögfræðingi Aras og hefur hann þegar lagt fram tvö sáttatilboð. Möguleiki er á því að málin ljúki með sátt og ekki þurfi að koma til þinghalds á þriðjudag.

Flestir lesendur DV kannast við mál Guðrúnar og Aras en viðtal DV við Guðrúnu í byrjun nóvember vakti gífurlega athygli: Guðrún leitar að manninum sínum svo hún geti skilið við hann

Guðrún segist hafa orðið fyrir margskonar tjóni af samskiptum við Aras. Bagalegast er að hún missir heimilisuppbót upp á 45.000 krónur mánaðarlega af því hún er gift en Guðrún er öryrki. Þá segist hún hafa haldið Aras uppi þann tíma sem þau bjuggu saman og til dæmis hafi megnið af slysabótum sem hún fékk runnið til hans.

Auk kröfu um lögskilnað gerir Guðrún kröfu um framfærslu aftur í tímann. Hefur verið lögð inn beiðni til sýslumanns um að úrskurðað verði að Aras greiði Guðrúnu framfærslueyri, helming húsaleigu frá dagsetningu hjónavígslunnar og þátttöku í framfærslukostnaði samkvæmt framfærsluviðmðum fyrir barnlaus hjón frá upphafi hjúskapar eða til vara síðustu 12 mánuði. Fjárkröfur nema samanlagt um 3,2 milljónum króna en sýslumaður úrskurðar um þetta.

Lögfræðingur Aras bauð skilnað að borði og sæng

Samkvæmt heimildum DV lagði lögmaður Aras fram sáttatilboð í dag og fól það í sér skilnað að borði og sæng. Hljómar sú tillaga nokkuð sérkennilega þar sem hjónin búa ekki saman og hafa engin samskipti. Aras fékk dvalarleyfi á sínum tíma á grundvelli hjónabandsins en leyfið rann út í lok nóvember. Síðan þá hefur umsókn Aras um endurnýjað dvalarleyfi verið til meðferðar hjá yfirvöldum. Guðrún telur að Aras vilji ekki lögskilnað þar sem hann freisti þess enn að fá dvalarleyfi á grundvelli þessa hjónabands.

Sáttaboðinu var hafnað og lagði lögfræðingur Aras fram annað sáttaboð sem fól í sér lögskilnað en fallið yrði frá fjárkröfum. Því tilboði var svarað með gagntilboði þar sem slegið er af fjárkröfum, krafa um framfærslueyri aftur í tímann felld niður en þess krafist að Aras greiði eina milljón króna af áðurnefndum slysabótum. Einnig er farið fram á að hann greiði lögfræðikostnað Guðrúnar. Þessu tilboði hefur ekki verið svarað en ljóst er að nokkur sáttatónn er kominn í aðila og töluverðar líkur á því að Guðrún verði brátt laus úr þessu hjónabandi.

Segir Aras hafa trúlofast annarri konu

Samkvæmt Guðrúnu er Aras í ástarsambandi við aðra miðaldra konu í Reykjavík. Segir hún parið hafa trúlofað sig fyrir skömmu og hefur hún birt mynd á Facebook sem á að sýna hendur parsins sem skarta trúlofunarhringjum. DV hefur ekki staðfestingu á trúlofuninni en ljóst er að hún myndi enn undirbyggja kröfu um lögskilnað og var þó nóg fyrir til að reisa þá kröfu á.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Smásmugulegur leigusali fékk ekki bætur vegna ófullnægjandi þrifa leigutaka

Smásmugulegur leigusali fékk ekki bætur vegna ófullnægjandi þrifa leigutaka
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar