„Krufning hins látna sýndi að hann lést á mjög skömmum tíma af völdum skotsárs sem rauf lærslagæð hans. Þótt lögreglan hefði verið í fimm mínútna fjarlægð hefði lífi hans ekki verið borgið,“ segir Øyvind Lorentzen, umdæmisstjóri lögreglunnar í Finnmörku í Noregi, í viðtali við Morgunblaðið. Þann 27. apríl síðastliðinn varð Gunnar Jóhann Gunnarsson hálfbróður sínum, Gísla Þór Þórarinssyni, að bana með skotvopni. Voðaverkið var framið í smábænum Mehhamn.
Áður hefur komið fram að sjúkraliðsmenn sem komu á vettvang gátu ekki fengið að hlúa að Gísla Þór fyrr en lögregla kom á staðinn, en það var 40 mínútum síðar. Samkvæmt þessum upplýsingum mun það ekki hafa skipt sköpum. Um viðbragðstíma lögreglu segir enn fremur í greininni:
„Öll lögregluumdæmi hér í Noregi sæta gagnrýni aðlútandi viðbragðstíma annað veifið,“ segir Lorentzen snemma í samtalinu, „það sem hér skiptir höfuðmáli er að meðalviðbragðstími okkar er innan þeirra marka sem lögreglan í Noregi hefur sett sér.“ Hann segir lögreglu sífellt vinna að því að ná fram árangursríkari starfsaðferðum og öflugra forvarnastarfi gegn afbotum. „En við játum það alveg að við getum bætt okkur á þeim vettvangi,“ segir hann.
Lögregla hefur einnig verið gagnrýnd fyrir að hafa ekki gripið inn í fyrir atburðinn þó að hún hafi vitað að Gunnar Jóhann hafði orðið sér úti um skotvopn og hafði í hótunum við hálfbróður sinn, auk þess sem hann var í nálgunarbanni á hann. Samkvæmt fjölmiðli í Noregi og heimildarmönnum Morgunblaðsins fékk lögreglan margar símhringingar frá kærustu Gísla Þórs í kjölfar ógnandi hegðunar Gunnars Þór og er sagt að hún hafi ekki sinnt þeim. Lögreglan hefur hins vegar neitað þessu.
Heiða stígur fram með nýjar upplýsingar um harmleikinn í Mehamn