fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

627 brautskráðir frá Háskólanum í Reykjavík

Ritstjórn DV
Laugardaginn 22. júní 2019 15:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Háskólinn í Reykjavík brautskráði 627 nemendur við hátíðlega athöfn í Hörpu í dag, laugardaginn 22. júní. 400 nemendur voru brautskráðir úr grunnnámi, 225 úr meistaranámi og tveir nemendur útskrifuðust með doktorsgráðu. Í útskriftarhópnum voru 301 kona og 326 karlar.

Í fyrsta skipti var brautskráð frá sjö deildum, samkvæmt nýju skipulagi háskólans. Flestir luku námi frá verkfræðideild háskólans, eða 152 nemendur, þar af 79 úr grunnnámi, 71 úr meistaranámi og 2 með doktorsgráðu. Frá viðskiptadeild háskólans útskrifuðust 143 nemendur, þar af 80 með meistaragráðu. Tölvunarfræðideild útskrifaði 125 nemendur, þar af 9 með meistaragráðu. Sálfræðideild útskrifaði 76 nemendur, þar af 23 með meistaragráðu. Lagadeild útskrifaði 62 nemendur, þar af 31 með meistaragráðu. Frá iðn- og tæknifræðideild útskrifuðust 36 nemendur úr grunnnámi. Loks útskrifuðust 33 nemendur frá íþróttafræðideild, þar af 11 úr meistaranámi.

Í ávarpi sínu til útskriftarnema talaði Dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, um að háskólar beri mikla ábyrgð þegar kemur að því að undirbúa samfélagið fyrir framtíðina og kynnti nýja stefnu sem háskólinn hefur sett sér til að standa undir þeirri ábyrgð:

„Í menntun horfum við til þess að mæta nýrri kynslóð nemenda og nýjum þörfum samfélags með auknum sveigjanleika, stafrænni tækni og verkefnadrifnu námi í samstarfi við atvinnulíf og alþjóðlega samstarfsaðila. Um leið horfum við til þess að mæta nýjum menntunarþörfum þeirra sem þegar eru á vinnumarkaði, þar með talið útskrifuðum HR-ingum.  Þannig tryggjum við menntun til tækifæra, fyrir alla og á öllum æviskeiðum. Í þekkingu leggjum við áherslu á að skapa þekkingu sem styður við framþróun samfélagsins, að miðla nýjustu þekkingu erlendis frá og verða miðstöð þeirrar þekkingar sem þarf til að brúa milli samfélags og tæknibyltingar.“

Katrín Olga Jóhannesdóttir, formaður Viðskiptaráðs Íslands, veitti verðlaun VÍ fyrir framúrskarandi námsárangur í grunnnámi.

Þau hlutu að þessu sinni: Esther Ýr Óskarsdóttir BA í lögfræði, Jevgenij Stormur Guls BSc í vél- og orkutæknifræði, Þóra Kristín Jónsdóttir BSc í íþróttafræði, Guðrún Þóra Sigurðardóttir BSc í hátækniverkfræði, Matthías Davíðsson BSc í tölvunarfræði, Karen Kristinsdóttir BSc í sálfræði og Sverrir Bartolozzi BSc í hagfræði og fjarmálum.

Ragnhildur Ágústsdóttir, BSc í viðskiptafræði frá HR árið 2005, frumkvöðull og sölustjóri samstarfsaðila Microsoft á Íslandi, flutti hátíðarávarp útskriftarinnar og Sindri Ingólfsson, BSc í tölvunarstærðfræði, flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnemenda.

Hægt er að horfa á upptöku frá brautskráningunni á vef HR: https://livestream.com/ru/2018juni

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu