fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Aftakaveður og blindbylur: Svona verður staðan klukkan 18 á morgun

Ritstjórn DV
Mánudaginn 9. desember 2019 08:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Á Grænlandshafi er lægð að nálgast landið og úrkomusvæði hennar gengur norðaustur yfir landið í dag. Fer því fljótlega að snjóa suðvestanlands, en síðar slydda eða rigning á þeim slóðum. Hægur vindur norðaustan til fram á kvöld, en fer þá einnig að hvessa og snjóa þar. Hlýnar nokkuð í veðri í dag.“

Þetta segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.

Önnur kröpp lægð sunnan úr hafi kemur upp að Austfjörðum í nótt og munu lægðirnar tvær valda í sameiningu ört vaxandi norðanátt á landinu. Útlit er fyrir afar slæmt veður víða á landinu á morgun.

„Kominn verður stormur eða rok og farið að snjóa norðan til í fyrramálið, en mun hægari vindar og bjartviðri syðra. Eftir hádegi herðir enn á norðanáttinni og bætir talsvert í snjókomu nyrðra, en hvessir einnig fyrir sunnan. Vinstyrkur getur náð ofsaveðri við norðvesturströndina á morgun og jafn vel víðar, t.d. er spáð roki í efri byggðum Reykjavíkur.“

Þá er bent á að margar gular viðvarnir vegna vinds og hríðarveðurs séu í gildi fyrir morgundaginn og gætu sumar þeirra hækkað í appelsínugult.

„Óveðrið mun valda samgöngutruflunum á Norður- og Vesturlandi og valda röskun á öllum flugferðum innan- sem utanlands. Vart þarf að taka fram að ferðalög á umræddum svæðum eru ekki æskileg og fólk er hvatt til að ganga tryggilega frá híbýlum sínum og lausamunum. Byggingaverktakar ættu að koma byggingaefni og vélum í skjól og sama gildir um vörur og vélar á athafnasvæðum og höfnum. Íbúar norðan- og vestanlands ættu einnig að búa sig undir hugsanlegar rafmagnstruflanir, sem gætu haldist þar til veðrinu slotar.“

Að sögn Veðurstofunnar byrjar norðanhvellurinn að ganga niður aðfaranótt miðvikudags, fyrst vestan til, en áfram mun þó hríðarbylur herja á Norðaustur- og Austurlandi fram á kvöld.

Á vefnum Blika.is, sem Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur heldur úti, er búið að teikna upp hvernig staðan klukkan 18 á morgun gæti orðið.

Einar notast við spákeyrslur frá GFS (Bandarísku veðurstofunni) en Veðurstofan frá ECMWF (Reiknimiðstöð evrópskra veðurstofa) og því er ákveðinn munur á milli spánna.

Reykjavík kl. 18 á þriðjudag:

Blika:  25 m/s.

VÍ:  21 m/s.

 

Blönduós kl. 18 á þriðjudag:

Blika:  26 m/s.  Úrk. 40 mm (byrjar að snjóa um kl. 8).

VÍ:  26 m/s.  Úrk. 20- 25 mm.

 

Steingrímsfjaðarheiði kl. 18 á þriðjudag:

Blika:  25 m/s.  Úrk.  4 mm  (undarlega lágt gildi!)

VÍ:  28 m/s.  Úrk 28 mm.

 

Veðurhorfur á landinu, samkvæmt Veðurstofunni:

Gengur í suðaustan 13-20 m/s með snjókomu í fyrstu, en síðan slyddu eða rigningu, hvassast við S-ströndina. Lengst af mun hægara NA-lands og úrkomulítið, en hvessir þar í kvöld og fer að snjóa. Lægir þá jafnframt fyrir sunnan og vestan. Hiti víða 0 til 5 stig í dag.
Vaxandi norðaustanátt í nótt, 18-25 m/s og fer að snjóa á N-verðu landinu í fyrramálið, en mun hægara og bjart syðra. Gengur í norðan 23-30 m/s á V-verðu landinu eftir hádegi, hvassast við NV-ströndina og hvessir einnig S-lands. Snjóar talsvert á N-landi og Vestfjörðum og einnig hríðarbylur á V-landi. Áfram norðanaftakaveður á N- og V-verðu landinu annað kvöld, en mun hægara og skýjað með köflum SA til. Hiti kringum frostmark.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar