fbpx
Miðvikudagur 25.febrúar 2026
Fréttir

Haraldur hættir sem ríkislögreglustjóri

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 3. desember 2019 11:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Haraldur Johannessen hefur óskað eftir því við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra að fá að láta af embætti ríkislögreglustjóra um áramót. RÚV greinir frá þessu og segir að Haraldur hafi sent samstarfsfélögum sínum bréf um þetta í morgun.

Boðað hefur verið til blaðamannafundar klukkan eitt þar sem Áslaug Arna mun fara yfir mál lögreglunnar. Ekki liggur fyrir hvert erindi fundarins er en ekki þykir ólíklegt að málefni ríkislögreglustjóra verði meðal annars rædd þar.

Í frétt RÚV kemur fram að Haraldur hafi óskað eftir því að taka að sér ráðgjöf við ráðherra á sviði löggæslumála eftir að hann lætur af embætti. Þá er vísað í Harald sem segir að hann stígi sáttur frá borði, nú þegar breytingar eru boðaðar á yfirstjórn lögreglumála á landinu sé rétti tíminn til að hleypa nýju fólki að.

Gustað hefur um Harald á undanförnum mánuðum og í haust var hann til að mynda gagnrýndur harðlega af Landssambandi lögreglumanna og Lögreglufélagi Reykjavíkur. Var hann sakaður um ógnar- og óttastjórnun. Þegar rætt var við Harald í haust virtist ekkert fararsnið vera á honum. Þá sagði hann við fjölmiðla að hann ætlaði sér að sitja áfram næstu þrjú árin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum
Fortinet verðlaunar OK
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Dagur horfir fjögur ár aftur í tímann: „Síminn hringdi. Það var númer sem ég þekkti ekki“

Dagur horfir fjögur ár aftur í tímann: „Síminn hringdi. Það var númer sem ég þekkti ekki“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

„Við Íslendingar eigum að segja takk“

„Við Íslendingar eigum að segja takk“
Fréttir
Í gær

Rúmeni á yfir höfði sér margra ára fangelsi hér á landi

Rúmeni á yfir höfði sér margra ára fangelsi hér á landi
Fréttir
Í gær

Fjölskylda Evu fær ekki svör – Læknirinn sem ákvað lífslokameðferð móður hennar enn starfandi

Fjölskylda Evu fær ekki svör – Læknirinn sem ákvað lífslokameðferð móður hennar enn starfandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flúði undan áreitni Ólafs biskups – „Ég hélt að lungun í mér myndu springa, svo hratt hljóp ég, enda logandi hrædd“

Flúði undan áreitni Ólafs biskups – „Ég hélt að lungun í mér myndu springa, svo hratt hljóp ég, enda logandi hrædd“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rúta fór út af vegi á Reynisfjalli

Rúta fór út af vegi á Reynisfjalli