fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Fréttir

Ekkert verkfall hjá DV í dag – Blaðamenn á fjórum miðlum leggja niður störf

Ritstjórn DV
Föstudaginn 8. nóvember 2019 10:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú klukkan tíu lögðu blaðamenn, ljósmyndarar og myndatökumenn á Fréttablaðinu, Morgunblaðinu, RÚV og Vísi niður störf vegna verkfallsaðgerða félagsmanna í Blaðamannafélaginu. Verkfallsaðgerðirnar í dag taka ekki til DV og því verður full fréttaþjónusta í dag sem aðra daga.

DV er þriðji stærsti vefmiðill landsins og voru innlendir notendur rúmlega 123 þúsund að meðaltali hvern dag í síðustu viku samkvæmt mælingum Gallup. Verkfallsaðgerðirnar sem hófust í morgun standa til klukkan 14 í dag. Ef samningar nást ekki fyrir næsta föstudag munu blaðamenn á fyrrnefndum miðlum leggja niður störf í átta tíma þann daginn og svo í tólf tíma föstudaginn 22. nóvember.

Áréttað skal fram að verkfallsaðgerðirnar í dag og næstu föstudaga ná einungis til fyrrnefndra miðla, en ekki miðla sem þegar hafa samið, til dæmis Kjarnans, Stundarinnar og Mannlífs.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sverrir um ungu tæknitrúðana sem hanna gervigreind – „Þeir tala raunar eins og það sé þeim bókstaflega lífsspursmál að tortíma störfum fólks“

Sverrir um ungu tæknitrúðana sem hanna gervigreind – „Þeir tala raunar eins og það sé þeim bókstaflega lífsspursmál að tortíma störfum fólks“
Fréttir
Í gær

Telja að Trump dragi sig í hlé sem sáttasemjari á milli Rússlands og Úkraínu

Telja að Trump dragi sig í hlé sem sáttasemjari á milli Rússlands og Úkraínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hraunað yfir Gunnar Smára og allt á suðupunkti hjá sósíalistum – „Þetta er svo vitlaust að það er bara hlægilegt“

Hraunað yfir Gunnar Smára og allt á suðupunkti hjá sósíalistum – „Þetta er svo vitlaust að það er bara hlægilegt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona sem flýði blokkina í Írabakka eftir ónæði í sjö ár – „Ég kvartaði næstum daglega í Félagsbústaði“

Kona sem flýði blokkina í Írabakka eftir ónæði í sjö ár – „Ég kvartaði næstum daglega í Félagsbústaði“