fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Nú er Hallgrímur búinn að fá nóg: „Þetta má ekki. Þið brugðust“ – Við sættum okkur ekki við þetta

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 5. nóvember 2019 15:19

Hallgrímur Helgason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Dómsmálaráðherra, ríkislögreglustjóri, forstjóri Útlendingastofnunar, þið verðið að segja af ykkur. Þetta má ekki. Þið brugðust. Þið sjáið um þessi mál í nafni þjóðarinnar og þið brugðust.“

Þetta segir rithöfundurinn Hallgrímur Helgason í opinni færslu á Facebook-síðu sinni. Þar skrifar hann um mál ungu óléttu konunnar sem var vísað frá landinu í morgun. Hallgrímur kallar eftir því að þeir sem stjórna hér á landi axli ábyrgð og segi af sér. Annað sé ekki hægt.

„Hér er ekki hægt að vísa frá sér ábyrgð. Þetta var ykkar gjörð. Flestallir Íslendingar gráta athæfi ykkar og vilja ekki að svona sé farið með fólk á Íslandi. Og allir foreldrar vita hvernig það er að vera komnir upp á fæðingardeild eftir níu mánaða meðgöngu, þó ekki séu ríkislögregluljósin blikkandi á þá inn um gluggann.“

Hallgrímur segir að meðferð okkar á hælisleitendum og flóttamönnum hafi lengi verið til skammar.

„Við lifum hér í allsnægtum en erum samt svo ógnar treg að hleypa þurfandi fólki að borðinu. Við rekum hér, eins og danska skáldið sagði um sitt eigið land, fasíska útlendingapólitík, ómannúðlega og smásálarlega. Trekk í trekk hafa svona mál komið upp. En hér gangið þið alveg fram af okkur. Það hefur lengi verið ljóst hversu köld þessi pólitík er en á fyrsta degi í embætti sagði samt nýr dómsmálaráðherra stefnuna vera mannúðlega. Og nú er þá að standa með þeirri mannúð!“

Hallgrímur segir að það sé gert með því að segja af sér.

„26 ára gömul albönsk kona sem komin er níu mánuði á leið er borin út eins og hér sé um að ræða einhverja nútíma tegund af útburði, þeim svarta bletti á sögu landsins. Þar sem þessi atburður mun standa í Íslandssögunni verður dómurinn yfir ábyrgðarfólki hans æði svartur. Og þetta gerist á vakt tveggja ungra upplýstra kvenna í forsætis- og dómsmálaráðuneyti…“

Hallgrímur segir að ábyrgðin sé hjá þeim þremur sem hér að ofan eru nefndir, en VG-liðar hljóti að hafa áttað sig á því að þeir sitja með „fallega klæddum fasistum“ við ríkisstjórnarborðið. Hallgrímur segir svo, innan sviga, að það sé absúrd dæmi og annar debatt að hvert ráðuneyti geti síðan haft sína eigin stjórnarstefnu. Stefna ráðuneytanna eigi að vera á byrgð ríkisstjórnarinnar í heild.

„Lágmarkskrafa er því afsögn þessara þriggja strax og síðan á að senda fólk eins og skot út á eftir albönsku fjölskyldunni og sjá til þess að konan fái alla þá fæðingaraðstoð sem í boði er, hvar sem hún er niðurkomin, og fjölskyldunni verði svo boðið hingað um leið og færi gefst og gefinn ríkisborgararéttur. Til að lágmarka tjónið, til að sýna sæmd og sanna MANNÚÐ.

Við sættum okkur ekki við svona framkomu, við sættum okkur ekki við svona Ísland.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Í gær

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“
Fréttir
Í gær

Lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu slysi fyrir sjö árum en komst engu að síður á topp Hvannadalshnjúks

Lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu slysi fyrir sjö árum en komst engu að síður á topp Hvannadalshnjúks
Fréttir
Í gær

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu
Fréttir
Í gær

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“
Fréttir
Í gær

Fékk skilorð fyrir ofsafengna sveðjuárás

Fékk skilorð fyrir ofsafengna sveðjuárás