fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

„Í skjóli nætur var hann tekinn af okkur og settur í fóstur“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Sunnudaginn 10. nóvember 2019 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðbjörg Sigurðardóttir Fær ekki ömmubarn sitt í fóstur, þrátt fyrir að vera með fósturleyfi.

Í september á síðasta ári tók barnaverndarnefnd þriggja mánaða dreng frá móður sem var í meðferð á Vogi. Drengnum var í kjölfarið komið fyrir á fósturheimili. Amma og afi drengsins fengu enga tilkynningu um að til stæði að taka drenginn af dóttur þeirra og þeim ekki gefinn kostur á að fá drenginn til sín í fóstur, þrátt fyrir að þau hafi nú þegar alsystur hans í varanlegu fóstri.

Uppi í eldhússkáp á heimili Guðbjargar Sigurðardóttur og eiginmanns hennar er bréf. Bréfið er ritað til dóttursonar þeirra sem þau fá ekki að hitta nema einu sinni á ári, undir eftirliti. Bréfið bíður þess tíma er drengurinn leitar uppruna síns og á að skýra þá atburðarás sem átti sér stað þegar hann var tekinn frá fjölskyldu sinni.

Drengurinn tekinn á meðan móðir hans var í meðferð

Dóttir Guðbjargar hefur lengi glímt við fíkn. Hún á þrjú börn. Elsta barnið er sjálfráða og býr erlendis hjá föður sínum. Miðjubarnið, 11 ára, er í varanlegu fóstri hjá ömmu sinni og afa en yngsta barnið, eins árs drengur, býr nú hjá fósturfjölskyldu og er aðeins heimiluð takmörkuð samskipti við fjölskyldu sína.

Guðbjörg með drenginn áður en hann var tekinn.

Guðbjörg og maður hennar fengu dótturdóttur sína í fóstur fyrir rúmlega þremur árum síðan. Síðan verður dóttir þeirra ófrísk aftur og henni fæðist drengurinn í júní í fyrra.

„Allt gengur vel og hún fer inn á svona vistheimili barna eftir að drengurinn kemur í heiminn. Hún var mjög veik. Hún hafði verið mænudeyfð og fékk ekki máttinn aftur og var ekki alveg hætt öllu því sem hún átti að hætta. Hún var sem sagt í neyslu. Hún er þarna á vistheimilinu. Hann fæðist í júní og svo í september er verið að tala við hana og henni sagt að gera þetta og hitt til að halda barninu sínu. Hún samþykkir það að fara inn á Vog á meðan barnið er á vistheimilinu og svo á hún að fara í dagmeðferð því drengurinn er þarna svo ungur. Svo fer ég inn á vistheimilið í september til að heimsækja strákinn. Ég kem fyrst 23. september, afmælisdaginn minn, og hitti drenginn. Þá var dóttir mín komin inn á Vog. Þegar ég kem aftur tveimur dögum síðar er búið að taka hann.

Hvar er drengurinn? 

Guðbjörgu brá mikið þegar hún varð þess vís að drengurinn hefði verið tekinn af vistheimilinu.

„Ég spyr: Hvar er drengurinn? Og fæ svarið: Honum hefur verið komið fyrir í fóstri. Ég spyr þá: Hvers vegna er hann í fóstri? Og fæ svarið: Við bara ákváðum það. Þarna reiðist ég alveg svakalega. Ég er með barn, alsystur hans, í varanlegu fóstri. Af hverju mátti ég ekki fá drenginn till mín tímabundið?  Ég veit að við erum kannski orðin of gömul, en við vorum svo ósátt að við hefðum ekki getað fengið drenginn tímabundið á meðan dóttir okkar kláraði meðferðina. Auðvitað fékk hún ekkert tækifæri til þess. Hún auðvitað féll, barnið tekið af henni og hún hefur ekki fengið að hitta hann síðan. Þegar við fórum á fund hjá barnaverndarnefnd, ég og maðurinn minn, til að fá útskýringar á því hvers vegna við hefðum ekki fengið tækifæri á að fá drenginn til okkar, þá stóð þar skráð að við hefðum ekki sóst eftir því. Og við sögðum: Við getum ekki sótt um eitthvað sem við vitum ekki hvað stendur til. Í skjóli nætur var hann tekinn af okkur og settur í fóstur.“

Ekki aðili málsins

Guðbjörgu hefur reynst erfitt að fá viðhlítandi skýringar á stöðu dóttursonar síns. Móðir drengsins var fengin til að skrifa undir einhverja pappíra gegn því að fá umgengni við son sinn. Guðbjörg fær ekkert að vita um innihald þessara skjala að eigin sögn.

„Mér skilst að til að hún fengi að hitta hann þá þyrfti hún að skrifa undir einhver skjöl. Ég fæ ekkert að vita hvaða skjöl það voru því ég er náttúrlega ekki aðili að þessu máli.“

„Hann er hjá fósturforeldrum, sem eru yndislegir og ekkert út á þá að setja. Nema það, sem við erum mjög ósátt við, að systir drengsins, sem er í fóstri hjá okkur, fær að hitta bróður sinn einu sinni í mánuði. Fósturforeldrarnir koma og sækja hana á sunnudögum, fara með hana heim til sín og hún ver deginum með bróður sínum. Við fórum fram á það að við fengjum líka þessa umgengni. Hann má alveg vera í fóstri en við viljum fá að umgangast hann. Við báðum um að fá að hitta hann þá daga sem systir hans fær að hitta hann. Hann gæti þá komið til okkar eða við til þeirra í svona klukkutíma eða tvo. Því var neitað.“

Guðbjörg á erfitt með að skilja þessa afstöðu. Þar sem drengurinn fái að njóta umgengni við systur sína þá óumflýjanlega fær hann að heyra af ömmu sinni og afa.

„Af hverju má hann ekki vita af okkur? Systir hans mun alltaf segja honum frá okkur. Auðvitað munu vakna spurningar og svona hjá honum síðar meir. Við höfum fengið að hitta hann einu sinni í klukkutíma undir eftirliti fósturforeldra og barnaverndarnefndar. Við vorum með þrjá fullorðna aðila yfir okkur á meðan við lékum við þetta litla barn sem þekkir okkur ekki neitt.“

Mega ekki hallmæla barnaverndarnefnd

„Við erum alveg ofboðslega reið út í barnaverndarnefnd og höfum verið tekin á teppið fyrir að tala illa um barnaverndarnefnd,“ segir Guðbjörg og bætir við að þau hjónin hafi reynt að fara fram á rýmri umgengnisrétt en verið neitað um hann. Þau geta aftur sótt um eftir ár.

„Við þráum að fá að hitta þetta litla grey. Við erum bara ofboðslega reið. Dóttir mín vissi ekki að það ætti að taka hann, hann er tekinn í skjóli nætur eins og einhver hlutur.“

Móðir ekki fengið að hitta drenginn

„Forræðið er hjá barnaverndarnefnd. Svo fer hún á fund og hún fær að hitta hann fjórum sinnum á ári, en hún neitar því, vill hitta hann oftar. Og þá allt í einu er því fækkað í tvisvar á ári. Og hún hefur ekkert fengið að hitta hann. Fær það kannski í nóvember,“ segir Guðbjörg.

„Föðursystir drengsins reyndi líka að fá hann til sín. Hún fékk bara neitun. Það væri búið að ráðstafa drengnum. Barnaverndarnefnd segir alltaf að það sé reynt að halda barni innan fjölskyldunnar en í þessu tilviki var allt tínt til svo að föðursystir hans fengi hann ekki. Alls konar tilbúningur, hún átti að hafa farið í meðferð og tínt til að dóttir hennar hefði verið tekin á einhverjum bíl. Hún fékk meira að segja uppáskrifað frá Vogi að hún hefði aldrei farið í meðferð, en samt gekk þetta ekkert.“

Ekki á grafarbakkanum

Guðbjörg og eiginmaður hennar, Víglundur, eru hraust á besta aldri.

Guðbjörg telur mögulegt að ein ástæða þess að hún fái ekki drenginn til sín sé aldur hennar.

„Ég er 57 ára og maðurinn minn er 62 ára. Við erum ekkert á grafarbakkanum þannig séð. Þetta er mjög furðulegt og við fengum engan rökstuðning fyrir því af hverju við fengjum ekki að taka hann. Ég spurði meira að segja ættingja sem starfar innan barnaverndar í öðru bæjarfélagi hvort að aldurinn okkar hefði þarna eitthvað að segja, en það átti ekki að vera. Hann væri kannski á gráu svæði en ekkert agalegt.

Forsendurnar fyrir því að við megum það ekki eru að við höfum ekki viljað það. Hvernig sækjumst við eftir einhverju sem við vitum ekki að þurfi að sækjast eftir? Svo er þetta svo langt mál og margt að gerast. Eins og ég segi, maður hugsar á hverjum degi til hans. Hann er eins árs síðan í júní og við höfum gefið honum jólagjöf og afmælisgjöf. Ég skrifaði meira að segja bréf. Hann fékk afmæliskort með pakkanum sínum og svo skrifaði ég annað bréf um okkur og allt sem gerðist á þessu ári sem ég hef bara lokað uppi í skáp sem hann fær þegar hann verður eldri. Þetta sagði ég fósturforeldrum hans, að mér þætti leiðinlegt að hann fái ekki að vita af okkur.“

Verst þykir Guðbjörgu þó að barnaverndarnefnd hafi ekki gefið dóttur hennar tækifæri á að bæta ráð sitt. Hún hafi farið í meðferð eftir tilmælum barnaverndarnefndar, en þrátt fyrir það var barnið tekið meðan á meðferð hennar stóð. Þar fyrir utan var ljóst að hún ætti bakland, bakland sem var meira en tilbúið að taka við litla drengnum, tímabundið eða varanlega. „Hún fékk ekki einu sinni tíma til að sanna sig.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“