
Allmörg þjófnaðarmál hafa komið upp hjá lögreglunni á Suðurnesjum á undanförnumn dögum. Um helgina var lögreglunni tilkynnt að fjórum felgum með hjólbörðum hefði verið stolið undan bílaleigubíl í umdæminu. Þegar að var komið stóð bíllinn á undirvagninum öðru megin en á tjakk hinum megin.
Þá var tilkynnt um að vespu hefði verið stolið í Keflavík og að einhver eða einhverjir hefðu látið greipar sópa í skáp í búningsklefa í Bláa lóninu. Enn fremur var einstaklingur gripinn þar sem hann hafði tekið tvær tannkremstúpur, vítamínglas og límstifti úr verslun í umdæminu og tveir til viðbótar urðu uppvísir að þjófnaði í annari verslun sem stolið höfðu tveimur rakspíraglösum.
Loks barst tilkynning um ítrekaðan þjófnað úr komuverslun fríhafnarinnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Talið er að heildarverðmæti varningsins sem stolið hefur verið nemi um 150 þúsund krónum.