Í nokkur ár hafa íbúar í Mosfellsbæ lifað í hræðslu og óttast um heimiliskettina sína. Margir íbúar þar hafa upplifað þann harmleik að heimilisdýrið hverfur á dularfullann hátt og finnst ekki aftur. Hringbraut greindi frá þessu í dag.
Árný Ösp Aðalsteinsdóttir var ein af þeim sem hefur vakið athygli á þessu en kötturinn hennar hvarf sporlaust þann 15. júní síðastliðinn. Þá var kötturinn eins árs gamall, geldur og örmerktur.
„Undanfarin ár hafa gæfir heimiliskettir í Mosfellsbæ verið að hverfa. Kötturinn okkar hvarf og hans er sárt saknað. Hann var mikil kelirófa og kúrði hjá börnunum okkar þegar þær sváfu. Þær spyrja stöðugt um hann,“ sagði Árný í bréfi sem hún auglýsti eftir kettinum sínum.“
Árný útskýrir síðan betur hvernig ástandið er þarna í bænum.
„Frá því að við fluttum í Mosfellsbæ fyrir 6 árum síðan hafa 5 kisur horfið úr götunni okkar. Ég las nýlega að feðgar í holtunum eða Langatanga séu að taka kettina og skutla þeim upp í Kjós. Enginn virðist vita hvaða menn þetta eru eða hvar sirka í Kjósinni þeir eru að láta þá út. Mig langar að biðja alla að hafa augu og eyru vel opin svo hægt sé að finna kisurnar áður en þær deyja úr hungri og svo hægt sé að ná þessum mönnum,“
Hilda Allansdóttir vakti þá athygli á færslu Árnýjar í hópnum Kattavaktin á Facebook. Hringbraut ræddi við Hildu sem sagði að það væri nauðsynlegt að vekja athygli á þessu.
„Þetta er ekki kötturinn okkar en okkar kisi er núna týndur og við vonum að hann hafi ekki komist í hendur þessara manna. Það er eiginlega nauðsynlegt að vekja athygli á þessu máli og hreinlega er allt of mikið af óútskýrðum kattahvörfum,
Fleiri tóku undir orð þeirra Hildu og Árnýjar en ein kona segir að henni finnist það undarlegt hvernig Gríma, kötturinn hennar, hvarf.
„Heimilisköttur sem var alltaf í kallfæri. Hún kom alltaf þegar ég kallaði á hana. Eins finnst mér rosalega mikið af köttum að hverfa. Ég hef ekki fylgst með kattavaktinni fyrr en Gríma hvarf og ég verð að segja að ég er í sjokki! Að meðaltali eru tveir kettir á dag!“
Svo virðist sem þetta sé of alltof algengt mál en margir könnuðust við það og tjáðu sig um það í athugasemdunum.
„Mín hvarf akkúrat úr Skeljatanga í maí 2014 og ekkert spurst til hennar síðan. Var alveg ofboðslega gæf og ófeimin. Hennar hefur verið sárt saknað og ég sakna hennar enn á hverjum degi.“
„Þetta hefur verið þekkt lengi í Mosó. Las eitt sinn viðtal við fólk sem átti nokkra ketti og fjórir hurfu með stuttu millibili. Þetta er alveg skelfilegt.“
„Veturinn 2004-2005 var eitthvað svipað kattahvarfsdæmi í gangi í Töngunum, Mosfellsbæ. A.m.k. 6 kettir hurfu á innan við viku, þar á meðal hann Henry okkar. Við vorum gott sem búin að gefa upp alla von um að sjá hann aftur þegar hann birtist akkúrat 6 vikum síðar, grindhoraður. Henry var, svo mikið sem ég veit, eini kötturinn sem skilaði sér heim úr því hvarfi. Nokkuð greinilegt að þarna var einhver álíka rasshaus á ferðinni og sá sem virðist ganga laus núna.“
„Heyrði af þessu sama þegar kisurnar mínar tvær hurfu með stuttu millibili fyrir einhverjum árum einmitt í Mosó.“
Það virðist sem mikil skelfing ríki meðal kattaeiganda í Mosfellsbæ
Fleira fólk segir kettina sína hafa horfið sporlaust og án allra ummerkja þrátt fyrir örmerkingu og ólarmerkingu.
Ljóst er að mikil skelfing er á meðal kattaeiganda í Mosfellsbæ um þessar mundir og er fólk ákveðið í því að komast að því hvað sé að koma fyrir kettina þeirra.