fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Hörður spáir þungum vetri: „Staðan er um margt fordæmalaus“ – Uppsagnir og sameiningar í kortunum

Ritstjórn DV
Föstudaginn 11. október 2019 08:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Veturinn verður tími hagræðingar, sem mun einkum felast í uppsögnum, og sameiningum fyrirtækja í atvinnugreinum á borð við ferðaþjónustu,“ segir Hörður Ægisson, ritstjóri Markaðarins, í leiðara Fréttablaðsins í dag.

Hörður skrifar þar meðal annars um horfurnar í efnahagslífinu og bendir á að rekstrarumhverfi fyrirtækja hafi ekki verið jafn krefjandi og nú í langan tíma. Það birtist meðal annars í auknum launakostnaði, vaxandi atvinnuleysi, samdrætti í nýjum útlánum til fyrirtækja og kólnandi byggingargeira. Hörður á von á erfiðum vetri ef marka má leiðara dagsins.

„Við þessar aðstæður er viðbúið að fjárfesting í atvinnulífinu dragist verulega saman. Verðlækkanir á hlutabréfamarkaði eru hugsanlega viðvörunarbjöllur um það sem koma skal. Seðlabankinn hefur brugðist við með því að lækka vexti í fjórgang – samanlagt um eitt prósentustig – frá því í vor. Það er ekki nóg. Vaxtalækkanir hafa ekki skilað sér til fyrirtækja heldur eru þau í mörgum tilfellum að sjá hækkandi vaxtaálag í bankakerfinu.“

Hörður segir að þessi staða sé nokkuð sérstök í ljósi þessi að þjóðarbúið hafi aldrei staðið styrkari stoðum. Bendir hann á að 840 milljarða gjaldeyrisforða Seðlabankans, litla skuldsetningu ríkisins, viðvarandi viðskiptaafgang og jákvæða eignastöðu við útlönd. „Staðan er um margt fordæmalaus,“ segir hann og bætir við að blikur séu á lofti.

„Hættan er sú að óvissa og stigvaxandi svartsýni heimila muni smitast í einkaneysluna, helsta drifkraft hagvaxtar, fasteignamarkaðinn og fjárfestingaráform fyrirtækja. Slíkur spírall, sem við sjáum vísbendingar um að sé þegar hafinn, veldur því að allir rifa seglin á sama tíma. Nýta þarf betur tæki og tól peningastefnunnar til að afstýra slíkri atburðarás, einkum nú þegar verðbólguvæntingar fara lækkandi, með skýrari skilaboðum um vaxtalækkunarferlið í stað þess að bíða og sjá til. Nýr seðlabankastjóri nýtti því miður ekki það tækifæri á síðasta vaxtaákvörðunarfundi bankans,“ segir Hörður sem hnýtir einnig í opinbera geirann í leiðara sínum.

„Á meðan almenni vinnumarkaðurinn er að grípa til sársaukafullra aðgerða eru opinberir starfsmenn staddir í sínum hliðarveruleika. Stéttarfélög þeirra álíta að þau geti sótt sér meiri kjarabætur en um var samið í Lífskjarasamningunum fyrr á árinu. Það er ekki í boði að eftirláta opinberum starfsmönnum, sem eru með hæstu heildarlaun á Norðurlöndum, að leiða launaþróun á vinnumarkaði.“

Hörður segir að ríkið þurfi að sporna gegn niðursveiflunni sem ætti að felast í auknum innviðafjárfestingum og lækkun skatta á heimili og fyrirtækja. Það verði ekki gert með því að standa undir enn meiri útgjöldum til handa opinberum stofnunum. Bendir hann á tölur sem sýna að ríkisstarfsmönnum hafi fjölgað um 55 prósent frá aldamótum á sama tíma og fjölgunin nemur 18 prósentum á almennum vinnumarkaði. Þá séu skattar á Íslandi með þeim hæstu innan OECD og útgjaldaþensla ríkisins „stjórnlaus“.

„Það gætir vaxandi óþreyju með þessa þróun. Stærsti flokkur landsins, sem mælist nú með minna en 20 prósenta fylgi, hefur löngum talið sér það til tekna að vera málsvari einkaframtaks og minni ríkisumsvifa. Ekki fer þó mikið fyrir þeim áherslum, hvorki í orði né á borði, og sú staðreynd að fylgið er í botni þarf því ekki að koma á óvart. Áætlað er að útgjöld ríkissjóðs verði yfir þúsund milljarðar á næsta ári og hafa þau aukist um nærri 300 milljarða á einum áratug. Í stað þess að aukin útgjöld séu sjálfkrafa talin besti mælikvarðinn á árangur og þjónustu opinberra stofnana þarf ríkið að koma á skýrari mælikvörðum hvað skattgreiðendur eru að fá fyrir peninginn. Verði ekki snúið af þessari braut stefnir í óefni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala