

Lögreglan á Suðurnesjum hafði hendur í hári ökumanns á Reykjanesbraut í gærmorgun eftir að bifreið hans mældist á 161 kílómetra hraða. Hámarkshraði þarna er 90 kílómetrar eins og flestum er kunnugt.
Ekki nóg með það heldur er ökumaðurinn einnig grunaður um ölvunarakstur. Fyrir hraðaksturinn þarf hann að greiða 240 þúsund krónur, en auk þess verður hann sviptur ökuréttindum í þrjá mánuði og fær þrjá refsipunkta í ökuferilsskrá.
„Auk þess ofangreinda hefur lögregla kært á þriðja tug ökumanna fyrir hraðakstur á síðustu dögum. Einn þeirra ók sviptur ökuréttindum. Þá voru fáeinir teknir úr umferð vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna. Loks voru tæplega þrjátíu ökumenn staðnir að því að sinna ekki stöðvunarskyldu. Ekki þarf að fara mörgum orðum um hættuna sem af slíku athæfi getur stafað.“