„Stöndum saman vörð um landið, gerum ekki óþarfa vörður og hvetjum aðra einnig til þess að gera það ekki,“ segir í orðsendingu sem Umhverfisstofnun sendi frá sér í gær.
Þar er fjallað um vörður sem finna má víða á gönguleiðum. Þessar vörður þjónuðu áður þeim mikilvæga tilgangi að vísa veginn og gera margar þeirra það enn. Þessar vörður eru menningarminjar og varðveittar sem slíkar samkvæmt lögum.
Umhverfisstofnun bendir á að sumir gestir náttúruverndarsvæða eigi það til að byggja vörður eða steinahrúgur sem þjóna engum tilgangi.
„Steinum sem safnað er saman í vörður í dag á náttúruverndarsvæðum er jafn óðum eytt af landvörðum þar sem í raun er óheimilt að hrófla við jarðminjum. Steinar sem eru færðir til geta einnig skilið eftir sig ljót sár í grónu landi,“ segir í færslu stofnunarinnar.
Þá segir að landverðir hafi margir tekið sér nýtt orð yfir steinahrúgur eins og sjást á myndunum, en það er orðið varta. Þá er sagt frá Helenu, landverði í Þjórsárdal, sem fjarlægði á dögunum steinahrúgu sem staðið hefur í þó nokkurn tíma á holti einu í nágrenni við Hjálparfoss.
„Vartan eða steinahrúgan taldi nákvæmlega 3219 steina og það tók Helenu 1 klukkustund og 18 mínútur að dreifa úr grjóthrúgunni. Á annarri myndinni sést þegar Helena fjarlægir síðasta steinninn og upprunaleg ásýnd svæðisins er endurheimt. Stöndum saman vörð um landið, gerum ekki óþarfa vörður og hvetjum aðra einnig til þess að gera það ekki.“