Alvarlegt umferðarslys varð á Ingjaldssandi, Sansheiði í Gerðhamarsdal, laust fyrir kl. 18 í gær, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum. Veghefill sem var við vegheflun hafnaði utan vegar og stjórnandi veghefils lést. Tildrög slyssins eru ókunn og hefur lögreglan á Vestfjörðum málið til rannsóknar, með aðstoð Rannsóknarnefndar samgönguslysa og Vinnueftirlits.
Ekki er hægt að birta nafn ökumanns að svo stöddu.