Svona hefst pistill, sem ber heitið Dólgafemínismi, eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur í Fréttablaðinu í dag þar sem hún beinir penna sérstaklega að Hildi Lilliendahl sem hefur verið áberandi í hópi femínista hér á landi á undanförnum árum. Kolbrún segir dapurlegt að fylgjast með öfgafemínistum, sem koma óorði á hinn femíniska málstað, steypa sér hlakkandi yfir bráð sína.
„Bráðin er nær undantekningarlaust karlmaður – það segir sig sjálft – oft miðaldra eða eldri en það og stimplaður sem karlfauskur sem skilur ekki samtímann og því skal honum ekki hlíft.“
Segir Kolbrún og víkur síðan beint að Hildi Lilliendahl.
„Hildur Lilliendahl er ein af þeim dólgafemínistum sem stendur vaktina af mikilli samviskusemi. Orði einhver hlutina ekki nákvæmlega eins og henni líkar fær sá hinn sami yfirhalningu sem síðan er yfirfærð á hóp karlmanna sem eru afgreiddir eins og þeir séu fremur viðbjóðsleg fyrirbæri, sannir skaðvaldar í þessum heimi.”
Segir Kolbrún og víkur síðan að sumarhátíð Alþingis í Kaupmannahöfn en þar voru aðeins karlmenn.
„Dólgafemínistarnir vita að karlmenn kunna að rotta sig saman og gera sér glögga grein fyrir því að þá er ekki von á góðu. Hildur stóð vaktina af stakri samviskusemi og greip feginshendi orð sem Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, lét falla í ræðu á sumarhátíðinni. Hann sagði að málþóf ætti ekkert skylt við málfrelsi. Það er nokkuð til í því hjá honum. Hann bætti svo við að nauðgun ætti ekkert skylt við kynfrelsi. Nokkuð sem erfitt er að vera ósammála. Ekkert í þessum orðum hans var þess eðlis að ástæða væri til að ærast yfir þeim. Hildi tókst það samt, enda þaulvön að æsa sig af litlu tilefni og líður yfirleitt einkar vel í því hlutverki.”
Segir Kolbrún og bætir við að Hildur hafi sagt Helga hafa líkt nauðgun við málþóf. Einhverjir hafi auðvitað tekið undir þetta með henni og hellt sér yfir Helga sem hafi þó alls ekki verið að líkja nauðgun við málþóf. Hann hafi bara verið að bera saman tvo hluti, málþóf og málfrelsi annars vegar og nauðgun og kynfrelsi hins vegar. Því sé langsótt að halda því fram að hann hafi haldið því fram að nauðgun ætti eitthvað skylt við málþóf. Hildi hafi samt sem áður tekist að snúa rækilega út úr orðum hans og hafi uppskorið ærandi fagnaðarhróp stuðningsfólks síns.
Kolbrún víkur síðan að nýjasta innleggi Hildar í baráttu femínista:
„Nýjasta innlegg Hildar í feminíska baráttu er Tvitter færsla þar sem hún birti myndir af níu fyrrverandi ráðherrum með orðunum: „Ríða, drepa, giftast?“ Allir eru ráðherrarnir karlmenn, komnir vel á aldur. Konum er þarna gefið val um hvað þær vilja gera við þá.
Enginn þarf að efast um að ef karlmaður hefði birt myndir af þekktum konum með þessari sömu yfirskrift hefði hann kallað yfir sig almenna fordæmingu og verið stimplaður sem kvenhatari af verstu sort. En þegar kona opinberar fyrirlitningu sína á karlkyninu vekur það ekki mikla athygli, sumum þykir gjörð hennar jafnvel sniðug.“