„Ég játa mig endanlega sigraðan,“ segir Karl Ágúst Úlfsson, leikari og leikstjóri, sem er einna best þekktur fyrir Spaugstofuna sálugu sem var fastagestur á skjám landsmanna lengi vel.
„Ég veit það vel að ég á ekki að tjá mig meira um þetta mál, enda fyrir löngu nóg komið, en – fyrirgefiði – ég vona að þetta verði í síðasta skipti. Málið er bara að mér fallast hendur,“ segir Karl sem vísar þarna til Klausturmálsins svokallaða, eða öllu heldur viðbragða þingmannanna sem sátu að sumbli umrætt kvöld.
Karl Ágúst segir að Spaugstofan hefði líklega aldrei getað toppað þá atburðarás sem fór af stað í kjölfarið og sér ekki enn fyrir endann á.
„Í ríflega þrjátíu ár fékkst ég við það að gera hlægileg flest þjóðfélagsmál sem bar á góma, ýmist í fjölmiðlum eða fólks á milli. Oft var um að ræða spillingarmál, en líka bara almennar fréttir af mannlífi, menningu og tískustraumum. Af og til komu upp mál sem voru svo kjánaleg að enginn útúrsnúningur gat toppað þau. Og þá var venjulega best að láta þau eiga sig. Ef maður reyndi tók maður sénsinn á að verða ófyndnari en málið sjálft eins og það kom af skepnunni. Og það er einmitt það sem nú er að gerast: Nokkrir alþingismenn hafa tekið það að sér, ásamt lögmanni sínum, að iðka svo yfirgengileg trúðslæti á almannafæri að engin leið er að slá þeim við með útúrsnúningum eða ádeilu. Það sem endanlega setti mig út af laginu var þessi tilvitnun í fréttir,“ segir Karl á Facebook-síðu sinni og vísar til fréttar RÚV í dag.
Í umræddri frétt var greint frá því að Persónuvernd hefði hafnað kröfu lögmanns fjögurra þingmanna Miðflokksins um frekari gagnaöflun í málinu. Vildu þingmennirnir frá upplýsingar frá fjármálafyrirtækjum um mögulegar greiðslur inn á reikning Báru Halldórsdóttur sem tók þingmennina upp umrætt kvöld. Karl Ágúst hnaut sérstaklega um þetta orðalag í fréttinni:
„Í úrskurði Persónuverndar kemur fram að lögmaður þingmannanna telji sig hafa óræka sönnun fyrir því að Bára hafi undirbúið aðgerð sína vel. Hún hafi virt aðstæður fyrir sér kyrfilega í bíl sínum fyrir utan Klaustur, tekið mynd af þingmönnunum þegar hún steig út úr bílnum og sest niður í sama rými og þeir og hafið upptöku jafnskjótt.
Hann sagði að aðgerðir Báru væru tæpast á færi einnar manneskju og því benti allt til þess að um „samverknað hafi verið að ræða,“ segir í bréfi lögmanns fjórmenninganna. Þær væru þess eðlis að fleiri en einn hafi þurft til þar sem fylgjast hafi þurft með ferðum manna, afla sér búnaðar, læra á hann og útfæra og æfa aðgerðir. “
Karl Ágúst endar Facebook-færslu sína á þessum stuttu orðum:
„Ég játa mig endanlega sigraðan.“