Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í mörg horn að líta í gærkvöldi og í nótt. Ölvunar- og fíkniefakstur, hraðakstur, slagsmál og unglingadrykkja eru meðal þeirra verkefna sem lögregla sinnti.
Alls voru fimm ökumenn stöðvaðir í miðborginni og eru þeir ýmist grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis. Þá var tilkynnt um einstakling um klukkan 23 í gærkvöldi sem var að reyna að stela hjólum í miðborginni. Lögregla svipaðist um eftir manninum en fann hann ekki. Þá handtók lögregla mann í miðborginni um fjögur í nótt en sá reyndi að skalla lögreglumann. Hann fékk pláss í fangaklefa að launum.
Um hálf ellefu í gærkvöldi var tilkynnt um líkamsárás í Breiðholti. Hinn grunaði var handtekinn og vistaður í fangaklefa, en frekari upplýsingar um árásina koma ekki fram í dagbók lögreglu. Þá var tilkynnt um unglingadrykkju við grunnskóla í Kópavogi um miðnætti í gærkvöldi. Þá handtók lögregla einn eftir að tilkynnt var um líkamsárás fyrir utan skemmtistað í Kópavogi rétt fyrir þrjú í nótt. Hinn grunaði var handtekinn og vistaður í fangaklefa.
Klukkan 22.30 var tilkynnt um unglingaslagsmál í Grafarvogi en frekari upplýsingar um málið liggja ekki fyrir í dagbók lögreglu.
Um miðnætti var tilkynnt um óvenjulegt aksturslag bifreiðar en ökumaður sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu. Eftir nokkra stund var aksturinn þó stöðvaður og var ökumaðurinn handtekinn. Hann er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis.
Einn ökumaður hið minnsta var stöðvaður fyrir hraðakstur. Sá var gómaður í Ártúnsbrekku, rétt fyrir klukkan eitt í nótt, og mældist bifreið hans á 143 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund. Samkvæmt sektarreikni á vef Umferðarstofu getur viðkomandi átt von á 230 þúsund króna sekt.