Tæplega hundrað mál voru skráð hjá lögreglu í gærkvöldi og í nótt og tengdust mörg þeirra ölvun á og við skemmtistaði borgarinnar og í heimahúsum.
Maður í annarlegu ástandi var til dæmis handtekinn eftir að hafa haft í hótunum við starfsmenn Gistiskýlisins. Þegar lögregla mætti á staðinn neitaði hann að gefa upp nafn og kennitölu. Hann var vistaður í fangaklefa í kjölfarið.
Þá var einn handtekinn í miðborginni vegna líkamsárásar á skemmtistað í miðborginni. Árásarmaðurinn var vistaður í fangaklefa. Annar var handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum í nótt. Hann var vistaður í fangaklefa eftir að hafa reynt að hlaupa á brott en lögregla hljóp hann uppi. Sá sem fyrir árásinni varð var fluttur á slysadeild til aðhlynningar.
Í tilkynningu lögreglu er einnig sagt frá einstaklingi í Hafnarfirði sem var handtekinn vegna húsbrots. Hann var vistaður í fangaklefa en frekari upplýsingar um málið koma ekki fram. Þá kom upp eldur í Seljaskóla í Breiðholti í gærkvöldi. Eldurinn reyndist sem betur fer minniháttar og tók slökkvistarf um klukkustund. Lögregla telur líklegt að kviknað hafi í út frá rafmagni. Þá kom upp eldur í skúr nærri Elliðavatni í nótt. Skúrinn brann til kaldra kola en eldsupptök eru ókunn.
Ekið var á ungu stúlku í Grafarvogi en ekki er vitað nánar um tildrög slyssins eða meiðsl stúlkunnar.
Lögregla hafði einnig afskipti af ökumönnum, eða tíu talsins, sem voru stöðvaðir vegna ölvunar- eða fíkniefnaaksturs. Loks voru skráningamerki fjarlægð af 16 ökutækjum þar sem þau voru annað hvort ótryggð eða höfðu ekki verið færð til skoðunar á tilsettum tíma.