fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Fréttir

Hvarfakútar hverfa

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Föstudaginn 2. júní 2017 12:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hvarfakútum hefur verið stolið undan sjö bifreiðum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum að undanförnu. Þetta er mikið tjón fyrir þá bíleigendur sem orðið hafa fyrir barðinu á þessum óprúttnu aðilum því nýr hvarfakútur kostar um 200 þúsund krónur.“

Þetta kemur fram í skeyti frá lögreglunni á Suðurnesjum. Hvarfakútur er svo vitnað sé í eldri grein Morgunblaðsins „tæki sem byggir á efnum sem nefnast efnahvatar (catalyst), en með nærveru sinni flýta þau fyrir efnahvörfum án þess að breytast sjálf. Efnahvatarnir sem eru notaðir í hvarfakútana eru eðalmálmarnir platína og rodium. Þessir kútar eru því mjög verðmætir hlutir.

99% af útblástursgasi bifreiða eru skaðlaus efni svo sem köfnunarefni (H), kolsýra (Co2) og vatnsgufur (H2O). Afgangurinn (1%) er kolsýrlingur (CO), kolvetni sem er mestmegnis óbrunnið bensín (HC) og köfnunarefnisoxíð (NOx). Hlutverk hvarfakútsins er að kljúfa síðarnefndu efnin og gera þau skaðlaus.“

Í skeyti lögreglu segir að allir bílarnir sem kútarnir voru sagaðir undan stóðu í Njarðvík, tveir hjá Heklu bílaumboði, einn hjá Nýsprautun og fjórir hjá KG bílum. Fyrri þjófnaðurinn átti sér stað um miðjan síðasta mánuð þegar hvarfakútar voru sagaðir undan þremur bifreiðum og sá síðari var tilkynntur til lögreglu nú í vikunni þegar kútar voru sagaðir undan fjórum til viðbótar.

Þeir sem búa yfir upplýsingum um þessi mál eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 4442200.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Vegagerðin vill hjartalaga umferðarljósin hennar Margrétar burt – „Ég eiginlega veit ekki hvað ég á að segja“

Vegagerðin vill hjartalaga umferðarljósin hennar Margrétar burt – „Ég eiginlega veit ekki hvað ég á að segja“
Fréttir
Í gær

Hefur staðan breyst eftir leiðtogafund NATO og hvað þarf Ísland að borga mikið?

Hefur staðan breyst eftir leiðtogafund NATO og hvað þarf Ísland að borga mikið?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ríkisstjórnin sendir þjóðinni skilaboð: „Það er engin ástæða til ótta – en það er rík ástæða til að vera vel undirbúin”

Ríkisstjórnin sendir þjóðinni skilaboð: „Það er engin ástæða til ótta – en það er rík ástæða til að vera vel undirbúin”
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rússneskur ráðherra segir að Rússland eigi í miklum efnahagsvanda

Rússneskur ráðherra segir að Rússland eigi í miklum efnahagsvanda