fbpx
Laugardagur 21.júní 2025
Fréttir

Hvað skiptir þig máli? Berðu saman stefnumálin með kosningakompás DV

Hvað boða flokkarnir í kosningunum? Hver er stefna þeirra í helstu málaflokkum?

Ritstjórn DV
Laugardaginn 29. október 2016 19:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag, laugardaginn 29. október, er gengið til alþingiskosninga í 22. skiptið frá lýðveldisstofnun. Tólf flokkar bjóða fram, þar af níu í öllum kjördæmum. Af því tilefni fór DV í gegnum stefnuskrár þeirra níu flokka sem bjóða fram í öllum kjördæmum og ákvað að bera saman áherslur þeirra í nokkrum af helstu málaflokkunum. Kosningaáttaviti DV er samsettur úr upplýsingum úr stefnuskrá flokka fyrir kosningar, sem og almennum stefnuskrám og ályktunum af síðasta flokksþingi/landsfundi flokka, eftir því sem við á, eins og þær birtast á vefsíðum viðkomandi flokka.
Úttektin auðveldar kjósendum, ákveðnum sem óákveðnum, að nálgast stóru málin á einum stað og bera saman áherslur milli flokka. Athuga ber að úttektin er í mörgum tilfellum ekki tæmandi. Í einhverjum tilfella er ítarlegri útlistun á tilteknum stefnumálum að finna á vefsíðum flokkanna. Hér er það helsta tekið, orðagjálfur klippt burt og reynt að leggja fram hnitmiðaða samantekt. Í þeim tilfellum þar sem upplýsingar var ekki að finna um tiltekinn málaflokk, er þess getið.


Sjálfstæðisflokkurinn

Listabókstafur: D

Utanríkismál:
Ísland standi utan ESB. Frjáls viðskipti á alþjóðavettvangi. Tengsl við Bretland eftir Brexit tryggð. Leita fríverslunarsamnings við Bandaríkin. Utanríkisstefnan grundvölluð á norrænu samstarfi, EFTA, EES og NATO. Hagsmuna Íslands á norðurslóðum gætt.

Skattar:
Lækka skatta, einfalda skattkerfið. Draga úr jaðaráhrifum skatta. Lækka tryggingargjald. Afnema lögbundið lágmarksútsvar. Afnema ýmsa tolla. Eitt og almennt skattumhverfi fyrirtækja. Taka á skattaundanskotum.

Sjávarútvegur:
Talað fyrir óbreyttu kerfi og nauðsyn þess að tryggja stöðugleika í sjávarútvegi svo hann geti áfram staðið að nýsköpun og lagt drjúgan og sanngjarnan skerf af mörkum til lífsgæða landsmanna.

Landbúnaður:
Nýta svigrúm sem landbúnaðinum hefur verið gefið með búvörusamningunum og leggja drög að nýjum og fjölbreyttari búskaparháttum á grundvelli einkaframtaks og frjálsra markaðshátta og samkeppni milli landa sem innanlands.

Atvinnumál:
Fjölbreytni, framtak og sjálfbærni í atvinnulífi sé forsenda framfara og undirstaða velferðar. Að aðlaðandi atvinnuumhverfi fyrir fólk og fyrirtæki sé fjölskyldustefna til framtíðar. Efla sprotaumhverfi og nýsköpun. Náttúruvæn og hagkvæm auðlindanýting.

Húsnæðismál:
Fyrstu íbúðarkaup auðvelduð með því að stuðla að því að lækka byggingarkostnað, einföldun byggingarreglugerða og auka framboð á íbúðum. Auðvelda fyrstu kaup með skattalegum og vaxtalegum hvötum til sparnaðar. Festa séreignarsparnaðarleiðina í sessi. Stuðla að virkari sölu- og leigumarkaði. Afskiptum hins opinbera af greiðslumati og ábyrgðum verði hætt.

Heilbrigðismál:
Lækka greiðsluþátttöku sjúklinga frekar. Áframhaldandi átak í styttingu biðlista. Auka þjónustu við aldraða. Geðheilbrigðisáætlun, forvarnir og heilsuefling almennings. Fjölga heilsugæslustöðvum og auka þjónustu. Unnið verði eftir langtímastefnu í heilbrigðismálum. Fylgja eftir framkvæmdaáætlun um uppbyggingu Landspítalans.

Umhverfismál:
Standa vörð um náttúruna og nýta með sjálfbærum hætti og með virðingu fyrir náttúrufegurð og lífríki. Heimila gjaldtöku til að vernda og stýra aðgangi ferðamanna að viðkvæmum svæðum. Telja að skynsamleg og hagkvæm nýting náttúruauðlinda sé að jafnaði best tryggð með því að nýtingar- og afnotaréttur sé í höndum einkaaðila. Vilja bæta raforkuflutningskerfi, nýta vistvæna orku og hafna því að leggja loftlínu fyrir raforku yfir miðhálendið.

Stjórnarskráin:
Varlega þurfi að fara í breytingar á stjórnarskránni og forðast afdrifaríkar kollsteypur. Víðtæk pólitísk sátt þurfi að vera um breytingar. Óheillavænt væri að knýja fram róttækar breytingar í krafti meirihluta hverju sinni.

Gjaldmiðill:
Vill halda íslensku krónunni.

Málefni öryrkja/eldri borgara:
Hækka ellilífeyri, frítekjumark verði tekið upp og kerfið einfaldað. Hækka eftirlaunaaldur í áföngum í 70 ár og auka sveigjanleika í starfslokum. Fresta töku lífeyris að hluta eða öllu leyti og flýta töku lífeyris. Heimaþjónusta efld samhliða fjölgun hjúkrunarrýma. Innleiða hvata til atvinnuþátttöku fólks með skerta starfsorku með upptöku hlutabótakerfis með frítekjumarki. Lögfesta notendastýrða persónulega aðstoð og tryggja sjálfstæði fólks með fötlun.

Málefni útlendinga:
Mannúðarsjónarmið og skilvirkni að leiðarljósi í málefnum hælisleitenda. Aðstoð við flóttamenn leiði til sjálfsbjargar. Móttaka flóttafólks sjálfsögð en leggja skal áherslu á að kerfið sé í stakk búið að taka á móti fólki. Tekið verði vel á móti útlendingum sem hér setjast að.

Menning:
Efla listnám á öllum skólastigum, tryggja aðgang að náttúrugripum og handritasafni, skapa samkeppnishæft umhverfi löglegra efnisveitna, leggja niður heiðurslaun listamanna, leggja RÚV niður í núverandi mynd, gera efni RÚV aðgengilegt almenningi.


Vinstri græn

Listabókstafur: V

Utanríkismál:
Ísland utan hernaðarbandalaga, tali fyrir friði í alþjóðasamfélaginu. Efli og stórauki framlög til þróunarsamvinnu til samræmis við stefnu SÞ. Ísland standi utan ESB.

Skattar:
Stórefla skatteftirlit og skattrannsóknir vegna undanskota. Banna nýtingu aflandsfélaga. Þrepaskipt skattkerfi sem nýtt verði til jöfnunar í samræmi við það sem gerist á hinum Norðurlöndunum. Áhersla á aukin framlög þeirra ríkustu. Hækka gistináttagjald og skipta tekjum milli ríkis og sveitarfélaga. Skattleggja stórfyrirtæki. Skattleggja brask með gjaldmiðla og skammtímagróða fjármagnshreyfingar.

Sjávarútvegur:
Tala fyrir sjálfbærri nýtingu fiskistofna, arður af auðlindinni renni til þjóðarinnar. Fylgja þurfi ráðgjöf vísindamanna við nýtingu fiskistofna. Fylgjast með reynslu Færeyinga og að til greina komi að hluti aflaheimilda verði boðinn upp á markaði hér á landi. Auðlindagjald tekið af sjávarútvegsfyrirtækjum í hlutfalli við afkomu greinarinnar. Auka strandveiðar og ráðstöfun heimilda til að verja byggðir landsins.

Landbúnaður:
Vilja endurskoða nýgerðan búvörusamning. Auka nýsköpun og rannsóknir í landbúnaði, vöruþróun og möguleika á rekjanleika með upprunamerkingu. Draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Bæta möguleika á lífrænum valkostum.

Atvinnumál:
Lægstu laun dugi fyrir grunnframfærslu, stytta vinnuvikuna án kjaraskerðingar og að upphæðir almannatrygginga fylgi launaþróun. Tryggja jöfn tækifæri allra til atvinnu með markvissri innviðauppbyggingu samgangna og fjarskipta. Auka grunnþjónustu og menntunarmöguleika í heimabyggð og jafna búsetukostnað. Fjárfesta í rannsóknum og nýsköpun, byggja upp þekkingariðnað og styrkja skapandi greinar.

Húsnæðismál:
Vilja tvöfalda stofnframlög til uppbyggingar leiguhúsnæðis og hækka húsnæðisbætur. Tryggja lán fyrir alla tekjuhópa þannig að þeir sem vilja eignast húsnæði eigi þess kost. Markmiðið að húsnæðiskostnaður fari ekki yfir fjórðung af ráðstöfunartekjum.

Heilbrigðismál:
Vilja félagslega rekið gjaldfrjálst heilbrigðiskerfi. Hafna einkarekstri í ágóðaskyni, arðgreiðslur úr heilbrigðisþjónustu óásættanlegar. Auka árleg framlög ríkisins til heilbrigðisþjónustu og að þau verði 11% af vergri landsframleiðslu. Nýr Landspítali við Hringbraut, efla heilsugæsluna, sjúkraflutninga og sjúkraflug um land allt. Draga úr kostnaðarþátttöku sjúklinga á kjörtímabilinu. Sálfræðiþjónusta verði hluti af almennri heilbrigðisþjónustu sem og tannlækningar, sjúkra-, tal- og iðjuþjálfun.

Umhverfismál:
Ísland verði kolefnishlutlaust árið 2050. Hverfa þurfi frá áformum um olíuvinnslu, skipta jarðefnaeldsneyti út fyrir endurnýjanlega orkugjafa o.fl. Stofna þjóðgarða á miðhálendi og hálendi Vestfjarða og stórefla heilsárslandvörslu. Friðlýsa svæði sem ákvörðuð eru í rammaáætlun og framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár. Tryggja þurfi umhverfisákvæði í stjórnarskrá, að náttúruauðlindir séu þjóðareign. Standa vörð um rammaáætlun.

Stjórnarskráin:
Vinnu sem hófst með þjóðfundinum 2010 verði lokið og kláruð ný stjórnarskrá sem byggir á tillögum stjórnlagaráðs.

Gjaldmiðill:
Vilja halda íslensku krónunni.

Málefni öryrkja/eldri borgara:
Hækka ellilífeyri – hann fylgi launaþróun – og tryggja að enginn sé lengur undir fátæktarmörkum. Hækka skattleysismörk ellilífeyris og draga úr tekjutengingu. Fjölga hjúkrunarrýmum og sjá til þess að aldraðir fái lifað með reisn. Byggja dvalarheimili og þjónustuíbúðir á viðráðanlegu verði fyrir þá sem þurfa meiri þjónustu í samstarfi sveitarfélaga, lífeyrissjóða og ríkisins.

Málefni útlendinga:
Íslendingar taki á móti fleiri flóttamönnum, að lágmarki 500 á ári. Jafna þurfi aðstæður hælisleitenda og svokallaðra kvótaflóttamanna og tryggja framkvæmd nýrra útlendingalaga með fjármagni og mannafla.

Menning:
Efla LHÍ, menningararfinn á stafrænt form, styrkja Listasafn Íslands, byggja Náttúruminjasafn, menningarstofnanir sinni öllu landinu, 10 ára áætlun um stuðning við íslenskuna, þriggja ára áætlun um eflingu listamannalauna, efla Kvikmyndasjóð og framhaldsmenntun í tónlist færð til ríkisins.


Framsóknarflokkurinn

Listabókstafur: B

Utanríkismál:
Vill standa utan ESB og hafna aðild að sambandinu. Vill viðræður við Breta um áframhaldandi viðskiptasamband í kjölfar Brexit. Vill endurskoða Schengen-samstarfið. Ísland verði virkt í stefnumótun fyrir norðurslóðir. Áhersla á að öryggi lands og þjóðar sé tryggt. Áframhaldandi aðild að NATO. Vill að framlög Íslands til þróunarsamvinnu endurspegli markmið SÞ.

Skattar:
Skattkerfisbreytingar. Lækka tekjuskattsprósentu á einstaklinga með lágar og millitekjur í 25%, tekjutengja persónufrádrátt þannig að hann falli niður þegar ákveðnum tekjum er náð. Barnabætur fylgi barninu. Vaxtabætur falli niður í núverandi mynd en sparnaði verði beint til lágtekjuhópa með útborganlegum persónuafslætti. Taka upp einstaklingsframtöl og hætta samsköttun hjóna.

Sjávarútvegur:
Vill sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar, hún skili arði til þjóðarinnar og treysti atvinnu og byggð um land allt. Vill að sveitarfélög hafi forkaupsrétt á aflahlutdeild sem selja á úr sveitarfélagi. Vill styðja við uppbyggingu fiskeldis og rannsókna á fiskeldi og vanda til verka. Lögsetja fyrirkomulag strandsvæðaskipulags.

Landbúnaður:
Leggur áherslu á að efla innlenda matvælaframleiðslu, auka innlenda neyslu og auka útflutning. Vill hvetja til nýsköpunar og tryggja að regluverk hamli henni ekki. Tryggja fjölskylduvænan landbúnað og nýliðun í greininni. Fagna nýsamþykktum búvörusamningum. Vilja auka milliríkjaviðskipti með landbúnaðarvörur. Tollvernd verði önnur tveggja meginstoða í stuðningi yfirvalda við landbúnað. Einhliða niðurfelling tolla kemur ekki til greina.

Atvinnumál:
Fjölga störfum enn frekar og sérstaklega sérfræðistörfum. Ríkið skapi hagstæða umgjörð fyrir atvinnulífið. Einfalda skattkerfið og regluverk atvinnurekstrar. Lækka tryggingargjaldið. Efla nýsköpun á öllum sviðum og beita skattaívilnunum til þess. Styðja vöxt ferðaþjónustunnar með því að taka upp komugjöld til uppbyggingar innviða, samgangna, fjarskipta og aðstöðu við ferðamannastaði. Landsbankinn verði áfram í eigu þjóðarinnar. Endurskoða þurfi peningastefnuna..

Húsnæðismál:
Talar fyrir öryggi í húsnæðismálum. Fyrsta fasteign, úrræði núverandi ríkisstjórnarinnar, sé rökrétt framhald leiðréttingarinnar. Tryggja þurfi aukið framboð íbúðarhúsnæðis með fleiri lóðum og einfaldari reglum um byggingu húsnæðis.

Heilbrigðismál:
Vill byggja nýjan Landspítala á nýjum stað og að framlög til heilbrigðisstofnana um allt land verði aukin. Heilsugæslan efld og biðtími styttur með fjölgun heimilislækna og sálfræðinga. Greiðsluþátttaka lækkuð og forvarnir auknar til að bæta lýðheilsu.

Umhverfismál:
Auðlindaákvæði verði sett í stjórnarskrá, landsmönnum tryggður sanngjarn arður. Lögfesta hvað flokkast sem auðlind og hverjar þeirra skuli vera í þjóðareign. Uppbygging innviða. Koma í veg fyrir átroðning á viðkvæmri náttúru landsins. Sporna við sóun. Draga úr plastnotkun. Fylgja sóknaráætlun í loftlagsmálum. Auka skógrækt, landgræðslu o.fl.

Stjórnarskráin:
Hlynntur endurskoðun á stjórnarskrá, fagnar framkominni tillögu um breytingar í vinnu stjórnarskrárnefndar.

Gjaldmiðill:
Lítur á krónuna sem framtíðargjaldmiðil Íslands. Mikilvægt sé að treysta umgjörð hennar og stöðugleika.

Málefni öryrkja/eldri borgara:
Lágmarkslífeyrir verði 300 þúsund krónur á mánuði og fylgi lágmarkslaunum á almennum vinnumarkaði. Lokið verði við heildarendurskoðun almannatrygginga. Tannlækningar aldraðra verði gjaldfrjálsar og hjúkrunarrýmum fjölgað um allt land.

Málefni útlendinga:
Íslendingar þurfi að sýna ábyrgð við móttöku flóttafólks. Mikilvægt af mannúðarástæðum að flýta málsmeðferð og lokaniðurstöðum í málefnum hælisleitenda. Fjölbreyttur bakgrunnur fólks leiði til betri og samkeppnishæfari vinnumarkaðar, framþróun atvinnulífs og betri árangri fyrir samfélagið.

Menning:
Fjölga menningarsamningum og styðja starf utan höfuðborgarsvæðis, efla Kvikmyndasjóð og greiða götur erlendra kvikmyndaframleiðenda, tryggja lykilsöfnum og Náttúruminjasafni góða aðstöðu, útvarpsgjald renni til RÚV, aðgerðir til að tryggja íslensku í stafrænum heimi.

Samfylkingin

Listabókstafur: S

Utanríkismál:
Vill þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB. Leggur áherslu á þróunarsamvinnu sem eina af meginstoðum íslenskrar utanríkisstefnu.

Skattar:
Vill þrepaskiptan tekjuskatt og að tryggt verði að tekjuháir og stóreignafólk greiði meira til samfélagsins. Vill nýta skattkerfið til að fjármagna opinberan rekstur og stuðla að jöfnuði í samfélaginu án þess að verða of íþyngjandi fyrir atvinnulífið.

Sjávarútvegur:
Vill að fiskveiðikvóti verði boðinn upp og almenningi með því tryggður sanngjarn arður af fiskveiðiauðlindinni. Með útboði verði nýliðun jafnframt auðveldari.

Landbúnaður:
Vill að horfið verði frá kvótakerfi í landbúnaði. Telur að með aðild að ESB, með tollafrelsi og afnámi viðskiptahindrana opnist ný tækifæri fyrir íslenskan landbúnað.

Atvinnumál:
Efla á útflutning og fjölbreytta atvinnustarfsemi með stuðningi ríkisins við rannsóknir, nýsköpun og skapandi greinar. Vill endurskoða tryggingargjald. Stýra þarf uppbyggingu í ferðaþjónustu betur.

Húsnæðismál:
Vill nýta fyrirframgreiddar vaxtabætur sem útborgun í fyrsta húsnæði og byggja upp húsnæðissparnaðarkerfi sem veiti skattafslátt. Vill byggja 1.000 leiguíbúðir á ári næstu fjögur ár. Byggja upp félagslegt húsnæðiskerfi.

Heilbrigðismál:
Vill afnema alla gjaldtöku í heilbrigðiskerfinu í skrefum. Auka aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu. Tryggja heilbrigðisþjónustu um allt land og byggja upp heilsugæslu. Byggja upp Landspítala við Hringbraut og byggja 500 ný hjúkrunarrými fyrir aldraða og langveika.

Umhverfismál:
Fylgja eftir stefnu græna hagkerfisins með því að beita hagrænum hvötum. Vill byggja upp þjóðgarð á miðhálendinu. Byggja upp almenningssamgöngur til að sporna gegn mengun. Ísland beiti sér á alþjóðavísu og taki forystu í umhverfismálum.

Stjórnarskráin:
Vill breyta stjórnarskránni á grundvelli tillagna stjórnalagaráðs. Leggja skal nýja stjórnarskrá fyrir Alþingi til samþykktar.

Gjaldmiðill:
Vill ganga í ESB og taka upp evru.

Málefni öryrkja/eldri borgara
Greiðslur til öryrkja og aldraðra fylgi þróun lægstu launa og verði 300 þúsund krónur á mánuði. Draga úr skerðingu og einfalda lífeyriskerfið.

Málefni útlendinga
Vill taka á móti fleira flóttafólki en nú er gert. Tryggja að hælisleitendur, flóttafólk og innflytjendur hafi aðgang að menntun, atvinnu og velferðarþjónustu á sama hátt og aðrir borgarar.

Menning:
Efla útflutningssjóð skapandi greina, stofna kynningarmiðstöð sviðslista, fella niður VSK af bókaútgáfu og listaverkainnflutningi, efla verkefnasjóði, langtímasamningar við alþjóðlegar hátíðir, endurvekja Menningarsjóð útvarpsstöðva, setja á fót fjölmiðlasjóð, auka framboð á framhaldsmenntun í listum.


Píratar

Listabókstafur: P

Utanríkismál:
Vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna við ESB. Hafna hernaðaruppbyggingu í N-Atlantshafi og Íshafinu og vilja stóraukið samstarf með nágrannaþjóðum varðandi eftirlit með landhelgi og lögsögu auk björgunarstarfa.

Skattar:
Ekki markmið að hækka skatta eða lækka þá, heldur vilja Píratar að skattheimta standi undir grunnstoðum samfélagsins. Tryggt skal að alþjóðleg fyrirtæki greiði skatta hér á landi. Leita á uppi fjármuni Íslendinga sem geymdir eru í skattaskjólum.

Sjávarútvegur:
Vilja breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu og bjóða upp aflaheimildir á opnum markaði. Vilja allan afla á markað. Vilja gefa handfæraveiðar frjálsar.

Landbúnaður:
Vilja afleggja búvörusamninga og koma á nýju landbúnaðarkerfi sem m.a. inniberi grunnstuðning við bændur óháð framleiðslu. Vilja fella niður tolla af landbúnaðarvörum. Afnema beri undanþágur matvælafyrirtækja frá samkeppnislögum.

Atvinnumál:
Leggja áherslu á uppbyggingu ferðaþjónustu með skýrri stefnumótun þar sem sjálfbærni og fagmennska er höfð að leiðarljósi.

Húsnæðismál:
Tryggja þarf öllum aðgang að húsnæði í takt við þarfir og fjárhagslega getur. Styðja á við leigjendasamtök og auka úrval búsetukosta. Bregðast þarf við aukinni eftirspurn eftir húsnæði. Tryggja ætti að húsnæði sem nú stendur autt standi til boða á leigumarkaði og hækka á húsaleigubætur.

Heilbrigðismál:
Vilja gjaldfrjálsa heilbrigðisþjónustu fyrir alla, óháð búsetu. Auka við fjármagn til heilbrigðiskerfisins og færa sálfræðiþjónustu og tannlækningar inn í almannatryggingakerfið. Halda áfram uppbyggingu Landspítala við Hringbraut en meta aðra mögulega staðsetningarkosti.

Umhverfismál:
Ábyrg umgengni við náttúruna og sjálfbær nýting auðlinda eru nauðsynleg forgangsmál. Náttúran njóti vafans og fylgja skal megingildum sjálfbærrar þróunar. Hlíta skal alþjóðasamningum um umhverfismál. Vernda þarf miðhálendið. Styðja við rafbílavæðingu.

Stjórnarskráin:
Samþykkja ber nýja stjórnarskrá þar sem tillögur stjórnlagaráðs verða lagðar til grundvallar í öllum efnisatriðum.

Gjaldmiðill:
Vilja að heimilt verði að gefa út hliðargjaldmiðla og að þá sé hægt að nýta til greiðslumiðlunar. Kanna skal kosti þess að breyta útgáfufyrirkomulagi íslensku krónunnar í heildarforðakerfi.

Málefni öryrkja/eldri borgara
Afnema á tekjuskerðingu á lífeyri og innleiða lágmarksviðmiðunarfjárhæðir sem teljast nægilegar til framfærslu og mannsæmandi lífs. Bæta á kjör aldraðra.

Málefni útlendinga
Taka ber á móti fleiri flóttamönnum og hælisleitendum og almennt að taka betur á móti fólki sem vill setjast hér að. Samræma stefnu í málefnum innflytjenda með það að markmiði að jafnræðis sé gætt gagnvart öllum erlendum ríkisborgurum.

Menning:
Tryggja höfundum ágóða af verkum sínum í endurskoðuðum höfundaréttarlögum, styrkja rétt höfunda gagnvart milliliðum, hugmyndir um þjóðfund um stefnu í menningarmálum.


Björt framtíð

Listabókstafur: A

Utanríkismál:
Vill klára aðildarsamning við ESB og leggja hann í dóm þjóðarinnar að undangenginni upplýstri umræðu. Íslendingar verði málsvarar mannréttinda, jafnréttis og friðar á alþjóðavísu og leggi sitt af mörkum til friðar í heiminum með þátttöku í þróunarsamvinnu, hjálparstarfi og friðarumleitunum, en taki ekki þátt í hernaði.

Skattar:
Einfalda þarf skattkerfið og gera það réttlátt og skiljanlegt fyrir almenning. Skattkerfið ætti að hvetja til innlendrar verslunar, nýsköpunar og vistvænnar atvinnustarfsemi.

Sjávarútvegur:
Vill byggja á aflamarkskerfi en nýta markaðinn til að sjávarútvegurinn greiði sanngjarnt gjald fyrir aðgengi að auðlindinni. Nýting sjávarauðlinda verði ætíð í jafnvægi og ekki verði gengið á rétt komandi kynslóða til að njóta sömu gæða.

Landbúnaður:
Vill opna á frekari inn- og útflutning á landbúnaðarvörum og auka samkeppni. Skjóta frekari forsendum undir byggð í sveitum með fjölbreyttari starfsemi en hefðbundnum landbúnaði. Úthluta á tollkvótum á sanngjarnan hátt.

Atvinnumál:
Vill auka fjölbreytni í atvinnulífinu með aukinni fjárfestingu eða annars konar hvatningu og aukinni rannsóknar- og þróunarstarfsemi. Rekstri lítilla og meðalstórra fyrirtækja verði gert hærra undir höfði með einfaldara regluverki, skattaumgjörð og hvötum sem efla rekstur þeirra.

Húsnæðismál:
Koma þarf á húsnæðislánamarkaði með lágum raunvöxtum til langs tíma. Það verður best gert með stöðugum gjaldmiðli. Fjölga þarf leiðum til að fólk geti komið sér þaki yfir höfuðið, bæði í séreign og leigu.

Heilbrigðismál:
Allir hafi jafnan aðgang að heilbrigðiskerfinu, hvar á landi sem er, í gegnum sameiginlegt sjúkratryggingakerfi. Auka þarf við forvarnir. Tannheilbrigði falli í auknum mæli undir sjúkratryggingakerfið.

Umhverfismál:
Endurvinnsla verði aukin, sem og vistvænir lífshættir almennt. Meðal annars verði lög áhersla á notkun vistvænna orkugjafa. Farið verði eftir rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Átak verði gert í vernd og uppbyggingu þjóðgarða og friðlanda.

Stjórnarskráin:
Vill setja nýja stjórnarskrá á grunni tillagna stjórnalagaráðs. Þó þarf að bregðast við málefnalegum athugasemdum. Gefa þarf þjóðinni tíma til að kynna sér tillögurnar vel.

Gjaldmiðill:
Vill að stjórnvöld móti sér stefnu til framtíðar í gjaldmiðilsmálum. Koma þarf á jafnvægi með stöðugum gjaldmiðli. Flokkurinn tekur ekki afstöðu til þess hvaða gjaldmiðill það gæti verið.

Málefni öryrkja/eldri borgara:
Einfalda ætti lífeyriskerfið og samræma opinbera og almenna kerfið. Samspil almannatrygginga og lífeyrissjóða skoðað með það að markmiði að það virki sem best fyrir fólk. Eldri borgarar geti notið þjónustu í því byggðarlagi sem þeir kjósa og þeim bjóðist fjölbreyttir og hagkvæmir búsetukostir.

Málefni útlendinga:
Íslendingar taki vel á móti flóttamönnum og sinni málefnum innflytjenda af stakri prýði.

Menning:
Efla listakennslu á öllum skólastigum, lækka skatta á menningarstarfsemi (m.a. bækur), stórauka fjárveitingar til skapandi greina, efla samkeppnissjóði, leysa húsnæðismál LHÍ.


Viðreisn

Listabókstafur: C

Utanríkismál:
Vill þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við ESB. Flokkurinn vill halda viðræðum áfram og bera aðildarsamning undir þjóðina. Telur að aðild fylgi margir kostir sem styrki stöðu Íslands og efli hagsæld.

Skattar:
Endurskoða skattkerfið, einfalda og auka skilvirkni þess, fækka undanþágum og íþyngjandi reglum. Auðvelda einstaklingum og fyrirtækjum að fara að reglum.

Sjávarútvegur:
Tryggja sátt um sjávarútveginn til framtíðar. Í stað veiðileyfagjalds verði ákveðinn hluti kvótans settur á markað á ári hverju til að fá sanngjarnt markaðstengt afgjald fyrir aðgang að auðlindinni. Hvetji til hagræðingar og hámarki arðsemi til lengri tíma og opni leið fyrir nýliðun.

Landbúnaður:
Lúti sömu lögmálum almennrar samkeppni og sömu lögum og annar atvinnurekstur. Breyta þurfi stuðningi við bændur svo hann auki hagræðingu, framleiðniaukningu og nýsköpun. Frelsi fyrir bændur til að vinna og markaðssetja afurðir sínar sjálfir. Hætta framleiðslu- og sölustýringu ríkisvaldsins. Afnema tolla og innflutningshöft á landbúnaðarvörur í áföngum.

Atvinnumál:
Leggja áherslu á samkeppni, sjálfbærni og nýsköpun. Stjórnvöld búi fyrirtækjum hagstæð rekstrarskilyrði og dragi úr efnahagssveiflum. Ríkisafskipti af atvinnuvegum verði í lágmarki. Hámarka arðsemi ferðaþjónustu, efla tekjulindir sveitarfélaga af ferðaþjónustu og auðvelda uppbyggingu innviða. Bílastæðagjald við ferðamannastaði.

Húsnæðismál:
Varanleg lækkun vaxta er stærsta hagsmunamál kaupenda og leigjenda húsnæðis. Tryggt með myntráði. Skattfrjáls sparnaðarleið til fyrstu kaupenda og áfram hægt að ráðstafa séreignarsparnaði til íbúðarkaupa. Endurskoða vaxtabótakerfið svo það styðji betur við fyrstu íbúðarkaup, stuðningur verði í formi eingreiðslu. Auka framboð á húsnæði, draga úr byggingarkostnaði, endurskoða byggingarreglugerðir.

Heilbrigðismál:
Ljúka byggingu Landspítala við Hringbraut fyrir 2022. Styrkja heilsugæslu um allt land. Stytta biðlista. Áhersla á meðhöndlun geðrænna vandamála og forvarna. Bætt aðgengi að sálfræðiþjónustu sem fari í skrefum inn í tryggingakerfið. Greiðsluþátttaka sjúklinga miðist við hverja fjölskyldu, taki mið af greiðslugetu allra samfélagshópa.

Umhverfismál:
Ríki móti heildstæða auðlindastefnu til langs tíma þar sem umhverfisvernd, heildarhagsmunir samfélags, hagsmunir sveitarfélaga, fjárfesting í innviðum og hagsmunir komandi kynslóða eru í forgrunni.

Stjórnarskráin:
Ljúka þarf endurskoðun stjórnarskrárinnar með víðtækri sátt til að efla beint lýðræði svo almenningur geti komið að ákvörðunum um mikilvæg málefni.

Gjaldmiðill:
Vill taka upp myntráð í stað núverandi peningastefnu. Það skapi varanlegan gengisstöðugleika. Myntráð felur í sér að festa gengi krónunnar við gengi annars gjaldmiðils.

Málefni öryrkja/eldri borgara:
Lífeyriskerfi almannatrygginga einfaldað, dregið úr skerðingu vegna annarra tekna. Enginn lífeyrisþegi fái minni heildartekjur en sem nemur lágmarkslaunum. Umbætur á vinnumarkaði til að bregðast við hækkandi eftirlaunaaldri, opna á möguleika á að hefja töku lífeyris almannatrygginga samhliða hlutastarfi. Bæta aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Nýstaðfestum samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks verði fylgt eftir með lögum.

Málefni útlendinga:
Taka á málum flóttafólks og hælisleitenda af mannúð og samkennd. Stytta málsmeðferðartíma og auðvelda þeim sem hingað flytja að verða virkir samfélagsþegnar og laga sig að nýjum heimkynnum með námi og vinnu. 

Menning:
Styrkja umgjörð listháskólanáms, efla samkeppnissjóði, styrkja stjórnsýslu skapandi greina, löggjöf um höfundarrétt í samræmi við tækniþróun, skattleggja höfundarréttartekjur líkt og fjármagnstekjur, opinberar stofnanir greiði listamönnum fyrir vinnu, styðja verkefni tengd íslensku í stafrænum heimi.


Dögun

Listabókstafur: T

Utanríkismál:
Vill að þjóðarvilji ráði för í ESB-málinu. Treystir þjóðinni til að ráða niðurstöðunni. Ísland á að vera herlaust og kjarnorkuvopnalaust land. Þjóðin skal ráða í mikilvægum málum er varða öryggismál þjóðarinnar. Leggja ber áherslu á skynsamlega og friðsamlega samvinnu þjóða.

Skattar:
Persónuafsláttur þarf að vera nógu hár til að laun sem nema lágmarksframfærslu séu skattfrjáls. Þrepaskipt skattkerfi, með stighækkandi skatti á hæstu laun. Tryggingargjald lækkað. Sveitarfélög fái hlutdeild í fjármagnstekjuskatti. Sérstakt gjald verði tekið af fjármagnsflutningum á milli landa (Tobin-skattur) til að koma í veg fyrir gjaldeyrisbrask.

Sjávarútvegur:
Stokka upp stjórn fiskveiða. Jafnræði ríki meðal landsmanna á nýtingu á sameiginlegum fiskveiðiauðlindum. Allur ferskur fiskur verði seldur á fiskmörkuðum. Aðskilja veiðar og fiskvinnslu fjárhagslega. Handfæraveiðar gefnar frjálsar.

Landbúnaður:
Stuðla að umbótum í landbúnaði með því að efla nýliðun og frelsi bænda til athafna. Hverfa frá eininga- og framleiðslutengdu styrkjakerfi og taka upp landnytja- og búsetustyrki. Draga úr miðstýringu, einfalda regluverk, fækka milliliðum. Efla Beint frá býli. Styðja við lífræna framleiðsluhætti. Efla yl- og kornrækt. Nytjaréttur bænda til sjósóknar verði virtur.

Atvinnumál:
Hvergi er vikið beinlínis að atvinnumálum almennt, nema í samhengi við aðra liði sem hér eru taldir upp.

Húsnæðismál:
Leigumarkað skal byggja upp að norrænni, þýskri eða austurrískri fyrirmynd. Auka valkosti á húsnæðismarkaði og tryggja langtímaleigurétt. Skapa rými fyrir óhagnaðardrifin húsnæðissamvinnufélög. Á móti því að fjármálafyrirtæki stofni og reki fasteignafélög inni á leigumarkaði sem arðsemisfjárfestar.

Heilbrigðismál:
Gjaldfrjálst heilbrigðiskerfi. Stöðva frekari niðurskurð og stórefla heilbrigðisþjónustu. Tannlækna- og sálfræðiþjónusta verði hluti af kerfinu. Rekstur og stjórnun í höndum hins opinbera, ekki drifin af hagnaði. Vilja endurmeta áform um einn stóran spítala við Hringbraut.

Umhverfismál:
Staðið verði við alþjóðlegar skuldbindingar í umhverfismálum. Þætta skal umhverfismál inn í flesta þætti samfélagsins, m.a. samgöngur, iðnað, landbúnað og ferðaþjónustu þar sem ábyrg og framsækin umhverfisstefna ríkis og fyrirtækja skili betri nýtni og arðsemi.

Stjórnarskráin:
Nýja stjórnarskrá. Tryggja skal með lögum rétt almennings til; ákvæðis þar sem þjóðinni er tryggður eignarréttur á auðlindum Íslands. Bindandi þjóðaratkvæðagreiðslur óski 10% kjósenda þess. Íbúar kjördæma eða sveitarfélaga geti átt frumkvæði að bindandi atkvæðagreiðslu um sameiginleg hagsmunamál óski 10% kjósenda þess.

Gjaldmiðill:
Krónan, en er opinn fyrir evru ef það er vilji þjóðarinnar.

Málefni öryrkja/eldri borgara:
Almannatryggingar tryggi öllum framfærslu í samræmi við framfærsluviðmið. Lögfesta þarf framfærsluviðmið til að tryggja framfærslu allra. Persónuafsláttur hækki og tryggi skattleysi lágmarkstekna.

Málefni útlendinga:
Virða alþjóðasamninga, taka vel á móti fólki og gera það vel. Gera þeim kleift að setjast hér að og taka þátt í íslensku samfélagi. Fjölbreytileikinn auðgar mannlífið. Flóttafólk njóti réttinda sem samræmist flóttamannasamningi SÞ. 

Menning:
Hugmyndir um ávísanakerfi, auðvelda aðgengi að opinberum safnkosti, skattafslátt til þeirra sem styrkja menningu, og að leikmenn komi að opinberum úthlutunarnefndum.


Flokkur fólksins

Listabókstafur: F

Utanríkismál:
Hafnar aðild að ESB.

Skattar:
Afnema það sem flokkurinn kallar skattlagningu á fátækt. Grunnframfærsla verði ekki lægri en 300 þúsund. Hyggst sækja aukið fjármagn í sameiginlegan sjóð þjóðarinnar og afnema allar undanþágur er varða virðisaukaskattskerfið. Lækka tryggingargjald til að koma til móts við lítil og meðalstór fyrirtæki.

Sjávarútvegur:
Fiskveiðistjórnunarkerfið verði endurskoðað og það tryggt að fullt verð fáist fyrir aðgang að auðlindinni. Allur veiddur fiskur fari á markað. Veiðiheimildir verði afskrifaðar um 5% á ári, sem boðnar verða upp árlega. Aukning á aflaheimildum verði boðin út, annars vegar til strandveiða og hins vegar til úthafsveiða. Frjálsar strandveiðar smábáta að fjórum tonnum.

Landbúnaður:
Ekki er fjallað sérstaklega um málaflokkinn á vef flokksins.

Atvinnumál:
Ekki er fjallað sérstaklega um málaflokkinn á vef flokksins.

Húsnæðismál:
Tryggja ungu fólki grundvöll til að stofna heimili og að námslán verði leiðrétt í samræmi við aðrar skuldaleiðréttingar. Verðtrygging verði afnumin og lækka vexti þannig að þeir verði ekki hærri en best þekkist í löndunum í kring.

Heilbrigðismál:
Allir eiga rétt á að leita sér lækninga óháð efnahag. Þennan rétt megi aldrei flokka sem forréttindi heldur sem þau sjálfsögðu lögbundnu mannréttindi sem okkur séu tryggð í stjórnarskrá.

Umhverfismál:
Ekki er fjallað sérstaklega um málaflokkinn á vef flokksins.

Stjórnarskráin:
Flokkurinn vill ná fram breytingu á stjórnarskrá þannig að 15% kosningabærra manna geti kallað eftir þjóðaratkvæðagreiðslu.

Gjaldmiðill:
Ekki er fjallað sérstaklega um málaflokkinn á vef flokksins.

Málefni öryrkja/eldri borgara:
Öryrkjum og eldri borgurum verði tryggð mannsæmandi afkoma svo þeir geti lifað með reisn. Afnema allar skerðingar greiðslna almannatrygginga og lífeyrissjóða til einstaklinga og að vinna eldri borgara og öryrkja verði aftengd skerðingum. Tafarlaus löggilding á samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks.

Málefni útlendinga:
Ekki er fjallað sérstaklega um málaflokkinn á vef flokksins.

Menning:
Ekki er fjallað sérstaklega um málaflokkinn á vef flokksins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Egill fékk skammir fyrir að gagnrýna mótmælendur – „Og þú móðgast yfir Palestínskum fána á 17 júní!!!???”

Egill fékk skammir fyrir að gagnrýna mótmælendur – „Og þú móðgast yfir Palestínskum fána á 17 júní!!!???”
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Var Jón Þröstur myrtur af launmorðingja sem fór mannavillt?

Var Jón Þröstur myrtur af launmorðingja sem fór mannavillt?
Fréttir
Í gær

Leigjandi beið ósigur í harðvítugri deilu við leigusala – Ásakanir um hlutdrægni höfðu ekkert að segja

Leigjandi beið ósigur í harðvítugri deilu við leigusala – Ásakanir um hlutdrægni höfðu ekkert að segja
Fréttir
Í gær

Maðurinn sem lifði af flugslysið segist vera þjakaður af sektarkennd

Maðurinn sem lifði af flugslysið segist vera þjakaður af sektarkennd