fbpx
Mánudagur 05.maí 2025
Fréttir

Kanye West áritaði skó Bergs Blæs: Parið 600 þúsund króna virði

Bergur Blær Kristjánsson á líklega verðmætasta skópar landsins – fékk áritun Kanye West á ónotað Yeezy-skópar

Björn Þorfinnsson
Fimmtudaginn 21. apríl 2016 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sautján ára menntaskólanemi datt í lukkupottinn þegar stórstjarnan Kanye West áritaði skóparið hans um síðustu helgi. Áritunin þýðir að skóparið gæti selst á rúmlega 5.000 dollara, sem gera um 600 þúsund íslenskar krónur. Eðli málsins samkvæmt er skóparið geymt í læstum peningaskáp hjá ættingja á meðan hinn útsjónarsami eigandi íhugar næstu skref.

Beið í biðröð í tvo sólarhringa

„Ég reikna með að selja þá fljótlega,“ segir Bergur Blær Kristjánsson, sem um síðastliðna helgi eignaðist að öllum líkindum verðmætasta skópar landsins. Forsaga málsins er sú að tæplega tveimur mánuðum áður hafði Bergur Blær, ásamt nokkrum félögum sínum, beðið í biðröð í tvo sólarhringa fyrir framan verslunina Húrra til þess að kaupa par af svokölluðum Yeezy-skóm. Þeir eru hannaðir af stórstjörnunni og Íslandsvininum Kanye West.

Hér má sjá sambærilega skó og þá sem Bergur Blær fjárfesti í. Fjárfesting sem að öllum líkindum skilar sér margfalt tilbaka.
Yeezy Boost 350 Pirate Black Hér má sjá sambærilega skó og þá sem Bergur Blær fjárfesti í. Fjárfesting sem að öllum líkindum skilar sér margfalt tilbaka.

Verðið á skónum, sem eru af gerðinni Yeezy Boost 350 Pirate Black, var um 35 þúsund krónur hérlendis. Þar sem skórnir voru aðeins seldir í takmörkuðu upplagi í sérvöldum verslunum um allan heim máttu þeir, sem lögðu það á sig að bíða, búast við því að geta selt skóna fyrir umtalsvert hærri fjárhæð. Markaðsvirðið, án áritunar, er yfir 100 þúsund krónur sé miðað við sölusíður á borð við eBay, og því ætluðu fæstir sem náðu sér í eintak að ganga í tískuskónum.

„There you have it“

Þegar Bergur Blær frétti af veru Kanye West á Íslandi þá fékk hann snjalla hugmynd. „Mamma átti erindi niður í bæ og bauð mér að koma með. Ég þáði það og greip skóparið mitt með. Við fengum okkur síðan að borða á veitingastað fyrir framan 101 hótel, þar sem Kanye og frú dvöldu,“ segir Bergur Blær hress í samtali við DV. Hann var við öllu búinn, með penna í vasanum, og fylgdist með hótelinu.

„Allt í einu sé ég að eitthvað er að gerast fyrir utan hótelið og þýt út,“ segir hann og lýsir atburðarásinni fyrir blaðamanni. Kanye West strunsaði framhjá eldheitum aðdáendum sínum en rak síðan augun í skóna hjá Bergi Blæ. Hann greip í pennann hans og áritaði skóna í hvelli. „Svo segir hann: „There you have it“,“ segir Bergur Blær, sem eðlilega var afar ánægður með atburðarásina. „Ég náði þessu á myndband til sönnunar, það var mikilvægt atriði,“ segir hann. Áritun Kanye West þýðir að verðmæti skóparsins hefur rokið upp og ekki ólíklegt að Bergur Blær geti selt það á ríflega 5.000 dollara, það er um 600 þúsund krónur. Eitt slíkt par til sölu á Ebay og eru allnokkrir áhugasamir kaupendur sem fylgjast grannt með söluferlinu.

Hér má sjá áritun Kanye West á Yeezy-skópari Bergs rétt áður en því var komið fyrir í traustum peningaskáp.
Verðmætt Hér má sjá áritun Kanye West á Yeezy-skópari Bergs rétt áður en því var komið fyrir í traustum peningaskáp.

Pílagrímsferð til Las Vegas

Félagar Bergs Blæs eru að hans sögn grænir af öfund. Þeir eiga sambærilega skó en eitt pennastrik þýðir líklega að um hálfri milljón króna munar á verðmæti þeirra. DV freistaði þess að fá mynd af hinu forláta pari og hinum útsjónarsama eiganda en það reyndist þrautin þyngri. „Ég fór með þá beint í peningaskáp hjá ættingja mínum sem er núna staddur erlendis. Þar eru þeir í öruggri geymslu,“ segir Bergur Blær og hlær.

Áritun þessa manns er afar verðmæt.
Kanye West Áritun þessa manns er afar verðmæt.

Fyrsta skrefið í söluferlinu var að senda tölvupóst á eftirlætis skóbúðina hans en sú heitir Urban Necessities og er í Las Vegas. „Búðin kaupir áritaða skó og hefur þá til sýnis. Ég sendi þeim strax tölvupóst og ætla að kanna hvort að þeir hafi áhuga á að kaupa parið af mér. Þá gæti ég mögulega farið einhvern daginn til Las Vegas og skoðað skóna í framtíðinni,“ segir Bergur Blær.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Valdimar Leó rifti ráðningarsamningi við Virðingu og er ekki undir rannsókn Samkeppniseftirlitsins

Valdimar Leó rifti ráðningarsamningi við Virðingu og er ekki undir rannsókn Samkeppniseftirlitsins
Fréttir
Í gær

Boðað til mótmæla í Íslendingabyggðinni á Spáni – Ótrúlegur sóðaskapur

Boðað til mótmæla í Íslendingabyggðinni á Spáni – Ótrúlegur sóðaskapur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Brotaþoli hópnauðgunar í Vesturbæ stígur fram og gagnrýnir umræðuna um málið

Brotaþoli hópnauðgunar í Vesturbæ stígur fram og gagnrýnir umræðuna um málið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Snærós miðlar af reynslu sinni – „Ég ætla að kenna allt sem ég kann og það er töluvert get ég sagt ykkur“

Snærós miðlar af reynslu sinni – „Ég ætla að kenna allt sem ég kann og það er töluvert get ég sagt ykkur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Siggi stormur veltir fyrir sér verðyfirlýsingum Bónus – „Einu sinni var talað um „hækkun í hafi““

Siggi stormur veltir fyrir sér verðyfirlýsingum Bónus – „Einu sinni var talað um „hækkun í hafi““
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir margt kunnuglegt í áróðri SFS og minnir á hvernig fór fyrir Seyðisfirði – „Þetta er beinlínis siðlaus framsetning.“

Segir margt kunnuglegt í áróðri SFS og minnir á hvernig fór fyrir Seyðisfirði – „Þetta er beinlínis siðlaus framsetning.“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu

Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu