fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Fréttir

Ragnar óttast lokun Draumasetursins: „Þau hafa bjargað lífi mínu“ – Hræddur um að enda á götunni

Fá ekki fjárveitingar frá Reykjavíkurborg eða velferðarráðuneytinu – Segir fjölmarga eiga eftir að enda á götunni ef Draumasetrið lokar

Auður Ösp
Fimmtudaginn 14. apríl 2016 20:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ef ég fer héðan er ég væntanlega að fara á götuna. Fyrir mig persónulega þá eru líkurnar á falli miklar ef ég fer á götuna. Líf fjölda fólks er í húfi,“ segir Ragnar Stefán Rögnvaldsson í samtali við DV.is.

Ragnar hefur dvalið á áfangaheimilinu Draumasetrið undanfarna mánuði og segir starfsemina þar hafa bjargað lífi sínu. Staðan er þó sú að rekstrargrundvöllur heimilisins er ekki öruggur þar sem Draumasetrið hefur ekki fengið fjárveitingar frá Reykjavíkurborg eða velferðarráðuneytinu síðustu þrjú ár og er á meðan rekið alfarið í sjálfboðavinnu. Ragnar segir augljóst að slíkt gangi ekki upp til lengdar og fer ekki leynt með þá staðreynd að ef heimilinu verður lokað þá sé lífi 40 manns stefnt í hættu.

Hefur gengið erfiðlega að fá styrk fyrir starfseminni.
Draumasetrinu Hefur gengið erfiðlega að fá styrk fyrir starfseminni.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Stofnað til að draga úr neyð

Draumasetrið er áfangaheimili við Héðinsgötu í Reykjavík en því var komið á föt af þeim Elín Örnu Arnardóttir og Ólafi Hauki Ólafssyni árið 2013. Ekkert starfsfólk er á heimilinu fyrir utan þau hjón. Í samtali við Fréttablaðið þann 26. mars síðastliðinn segir Ólafur að heimilið hafi verið stofnað til að draga úr þeirri neyð sem sumir fyrrverandi fíklar búa við, enda margir á götunni. Þar kemur einnig fram að þörf sé á eftirfylgni eftir að fólk kemur út af Vogi, oft hafi fólk engan stað til að fara á nema gamla neyslustaðinn. Einnig kemur fram að hjónin reiða sig á framlög frá einstaklingum,fyrirtækjum og félögum til að halda rekstri heimilisins uppi, en íbúarnir greiða lága leigu.

Fékk ekki styrk

DV hefur áður greint frá því að Draumasetrið hefur ekki fengið fjárveitingar frá Reykjavíkurborg eða velferðarráðuneytinu en í mars 2014 var rætt við annan íbúa,Dagmar Pálsdóttir sem hafði þá búið þar í nokkra mánuði. Greint var frá því í umræddri grein að engar reglur eru til staðar um áfangaheimili og hvergi í lögum er fjallað sérstaklega um áfangaheimili eða rekstur þeirra.

Rekstur áfangaheimila fellur ekki undir velferðarráðuneytið og því er ráðuneytum ekki skylt að veita fjárveitingar til þeirra. Heimilin geta sótt um styrki vegna verkefna, en ekki rekstur samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu. Draumasetrið, eða Spörvar líknarfélag, sótti um 45 milljóna króna styrk, en fékk ekki en í umsókninni var óskað eftir styrk til reksturs. Þar með féll styrkveitingin ekki innan þess ramma sem velferðarráðuneytið úthlutaði eftir, en samkvæmt honum þurfti að sækja um styrk til verkefnis sem stæði í eitt ár. Draumasetrið uppfyllti ekki þau skilyrði og fékk því ekki styrkinn.

Mikil óvissa

Ljóst er að sama ástand er uppi á tengingum nú. Í samtali við blaðamann segir Ragnar að hann hafi búið á Draumasetrinu undanfarna sjö mánuði en hann hefur verið edrú í tíu mánuði. Hann sendi í gær bréf á alla borgarfulltrúa Reykjavíkurborgar auk nefndarmanna í velferðarnefnd Alþingis. Aðspurður segist hann einhver svör hafa fengið.

„Einn úr meirihlutanum hefur svarað, Halldór Auðar og svo hafa Guðfinna og Ingvar svarað mér. Silja Dögg þingmaður hefur svarað líka en svörin eru öll bara á þá leið að „þetta verði skoðað.“ Fulltrúi í velferðarnefnd borgarinnar ætlar einnig að koma og skoða hjá okkur.“

Ragnar segir bréfið hafa verið hjálparkall þar sem augljóst sé að ríki og borg vilji á engan hátt koma til móts við rekstur áfangaheimilisins. Ljóst sé að loki Draumasetrið dyrum sínum, hvenær sem það muni gerast, þá muni fjöldi einstaklinga enda á götunni. Ragnar birtir bréfið í heild sinni á Facebook síðu sinni og verður gripið inn í það á nokkrum stöðum hér fyrir neðan:

„Ég er alkóhólisti. Ég missti gjörsamlega alla stjórn á mínu lífi, lifði í algjöru stjórnleysi og gríðarlega miklum óheiðarleika.“

„Ég er alkóhólisti“

„Ég er alkóhólisti. Ég missti gjörsamlega alla stjórn á mínu lífi, lifði í algjöru stjórnleysi og gríðarlega miklum óheiðarleika. Enginn gat treyst á mig, ekki einu sinni ég sjálfur. Ég sá þetta ekki eða öllu heldur vildi ekki sjá þetta. Ef ég var spurður hvort ég ætlaði nú ekki að fara að gera eitthvað í þessum málum hjá mér þávar ég fljótur til svars og sagði: „Frekar hætti ég að djamma en að fara í meðferð.“ Innst inni hef ég lengi vitað að ég myndi ekki getað notað alkóhól eða aðra vímugjafa eins og venjulegt fólk gerir. Það var alltaf tími til að fá sér; sama hvað var í gangi gleði, sorg, reiði eða kvíði. Alltaf fór ég þá leið að fá mér. Svo var staðan orðin sú að ég fann ekki lengur fyrir neinum góðum tilfinningum, gleði og hamingja heyrði sögunni til, kvíði og reiði voru einu tilfinningarnar sem ég fann fyrir.“

Finnur fyrir gleði og hamingju

Ragnar segir að loksins hafa verið komin að endastöð. Hann skráði sig í afeitrun á sjúkrahúsinu Vogi og þaðan fór hann á Staðarfell í nokkra mánuði. Vinur hans benti honum síðan á að sækja um á áfangaheimili þar sem hann hafði sjálfur dvalið.

„Á þessum tímapunkti átti ég hvergi heima. Edrú með ekkert heimili. Ég ákvað að prófa að sækja þarna um og eftir um það bil 36 tíma var ég kominn með herbergi á Draumasetrinu. Ég átti ekki sæng eða kodda og hvað þá rúm. Það var nú ekki vandamál: þau hjónin sem reka Draumasetrið redduðu mér þessu öllu. Ég kom inn í miðjum mánuði, peningalaus en það var ekki vandamál fyrir þeim. Þau sögðu að ég myndi nú bara græja það um mánaðarmótin, sem og ég gerði.“

Hann segir stórkostlega hluti hafa gerst í kjölfarið:

„Ég finn fyrir gleði og hamingju yfir hlutum sem ég tók ekki eftir áður, eins og náttúrunni og öllum hennar litum. Ég hlakka til lífsins alla daga, það er ekki þar með sagt að ég sé alltaf í eintómri gleði, en samt oftast. Ég geri mér líka grein fyrir því að litlu hlutirnir skipta miklu máli, litlu sigrarnir í lífinu. Til dæmis það að fara edrú í gegnum daginn. Þessi hjón sem reka Draumasetrið hafa líka kennt mér svo margt sem ég skildi ekki fyrir ekki svo löngu síðan. Til dæmis það að allir eiga skilið tækifæri á að hefja lífið aftur. Sama hvað þeir hafa verið taldir vonlausir þá eiga þeir samt skilið tækifæri til þess að láta reyna á þetta. Kanski tekst það núna og ótrúlegasta fólk nær að hefja nýtt líf hjá þeim. Fólk sem allir voru búnir að afskrifa. Fólk sem kerfið vildi gleyma það hefur öðlast von, von um að þessi ganga skili þeim loksins tilætluðum árangri.“

Mjög þakklátur

„Ég hef velt því fyrir mér hvers vegna þau hjón standi í þessu, það er að segja að reka áfangaheimili fyrir fólk sem kerfið virðist alltof oft vilja gleyma og ekki nóg með það að þau reki það, heldur búa þau í lítilli íbúð í sama húsnæði svo þau eru bókstaflega alltaf í vinnuni. Og fyrir hvað? Ekki eru það launin því þau eru engin og ekki er það vegna þess að ríki eða borg aðstoði þau við reksturinn því það fer ekki mikið fyrir aðstoð frá þeim. Hvers vegna þá? “

Ragnar segist vera ævinlega þakklátur þeim Ólafi og Elínu fyrir að hafa hjálpað honum að öðlast nýtt líf og beinir þessum orðum til ráðamanna:

„Ég sendi þér þennan póst til að þú sjáir að ég er manneskja. Með því að veita ekki aðstoð við starfið á Draumasetrinu ertu mögulega að eyðileggja framtíð mína og fjölda annarra til að geta lifað lífinu. Ég bið þig um að elska mig til lífs og alla aðra.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fjölskyldudeilur á Vestfjörðum – Foreldrar stefndu syni og tengdardóttur og sökuðu þau um misneytingu

Fjölskyldudeilur á Vestfjörðum – Foreldrar stefndu syni og tengdardóttur og sökuðu þau um misneytingu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útgerðarmaður græddi 75 milljónir á nauðungarsöluhneykslinu í Reykjanesbæ – Krefur nú unga öryrkjann um milljón

Útgerðarmaður græddi 75 milljónir á nauðungarsöluhneykslinu í Reykjanesbæ – Krefur nú unga öryrkjann um milljón
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ásthildur hissa – „Ekki í vafa um að bæjaryfirvöld á Akureyri munu hafna því alfarið að fjarlægja hjörtun“

Ásthildur hissa – „Ekki í vafa um að bæjaryfirvöld á Akureyri munu hafna því alfarið að fjarlægja hjörtun“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Telja mikla hættu á að vitinn á Gjögurtá falli í sjóinn

Telja mikla hættu á að vitinn á Gjögurtá falli í sjóinn