Sterkir strákar og valdalausar stelpur
Myndband nemenda í Verslunarskóla Íslands, sem gefið var út í síðustu viku í tilefni af nemendamóti skólans, hefur vakið talsverða athygli á netmiðlum. Lagið heitir Take you there, og bæði titill og myndefni kallast óneitanlega á við nýlegan smell Íslandsvinarins Justins Bieber. Í myndbandi Justins sést hann kela fáklæddur við unga snót, og fólk kippti sér ekkert verulega upp við það, hins vegar hefur svipað myndmál með íslenskum ungmennum í aðalhlutverkum vakið athygli á samfélagsmiðlum.
Emil Ortiz er einn þeirra sem birtu myndbandið á Facebook og hvatti hann fólk til að horfa á myndbandið, sérstaklega ef það hefði efasemdir um áhrif bandarískra miðla og afþreyingarefnis á íslenska æsku. „Það fyrsta sem ég hugsaði var, af hverju eru þeir að syngja á ensku? Svo fór ég að spá í hversu mikið þessi Versló myndbönd eru búin að breytast með árunum.“ Emil útskrifaðist úr MH í fyrra og finnst athyglisvert að skoða muninn á efni sem nemendur skólanna tveggja senda frá sér. „Í myndböndum frá MH sérðu að stelpur og strákar hafa jafn mikilvæg hlutverk, en í þessu nýja Versló myndbandi eru stelpurnar bara augnakonfekt.“
Þetta tekur Hanna Björg Vilhjálmsdóttir undir, en hún er kynjafræðikennari í Borgarholtsskóla.
„Í myndbandinu birtast stelpurnar í valdalausri stöðu, þær eru sýndar kynferðislega og lítið klæddar. Á meðan eru strákarnir gerendur, í valdastöðu. Þeir eru meira klæddir. Þeirra kynþokki felst í styrk og valdi, á meðan kynþokki stelpnanna felst í valdaleysi og klæðaleysi. Þarna er verið að styðja hefðbundin valdatengsl í samfélaginu. Skortur á gerendafærni er „normaliseraður“ hjá stelpum, þeim er kennt að bera meiri virðingu fyrir körlum en sjálfum sér. Svona efni ýtir undir hlutgervingu kvenna – stelpurnar halda áfram að skilgreina sig eftir kynþokka fyrst og fremst – því menningin gerir það. Karlar hafa meira frelsi til að gera – konur til að vera.“
Það er hópurinn 12.00 sem er ábyrgur fyrir myndbandinu, en hann er á meðal fjölmargra nefnda sem starfa á vegum Nemendafélags Verslunarskóla Íslands. Að sögn Styrmis Elís Ingólfssonar, forseta NFVÍ, er hlutverk nefndarinnar að búa til tónlistarmyndbönd og grínþætti, en nefndina skipa nokkrir strákar.
Styrmir segir NFVÍ starfa eftir jafnréttisstefnu og að reynt sé að leggja áherslu á að í nefndum þess sitji einstaklingar af báðum kynjum. „Í gegnum árin hafa verið fleiri strákar í þessari nefnd en stelpur. Eftir áramót urðu breytingar og núna eru bara strákar í nefndinni. Til samanburðar má nefna að núna sitja eingöngu stelpur í nefndinni sem sér um skólablaðið. Við erum meðvituð um þetta og höfum þá stefnu að jafna kynjahlutföllin. Við vinnum eftir jafnréttislögum innan skólans og höfum haldið málfundi þar sem kynjamál hafa verið rædd.“ Styrmir segir að hingað til hafi ekki verið teknar upp markvissar aðgerðir til að jafna hlut kynja í nefndum. „Við höfum rætt um hvort þurfi að gera það, bæði í skólanum og okkar á milli í hópum á netinu. Það hafa samt verið jákvæðar breytingar í þessum efnum og almenn vitundarvakning meðal nemenda, sérstaklega á síðasta ári.“
Formaður 12.00 nefndarinnar, Ari Friðfinnsson, segir að tilgangurinn með myndbandinu hafi verið að gera grín að myndbandi Justins Bieber sem ber sama titil.
„Það var alls ekki meiningin að þetta kæmi illa við neinn. Ég skil þó að þetta hafi farið fyrir brjóstið á einhverjum, eins og komið hefur fram á netinu. Eftir að umræðan fór af stað settum við 18+ merkingu við myndbandið á Youtube,“ segir hann en nemendur skólans eru almennt á aldrinum 16–20 ára. Ari segir fólk hafa brugðist vel við laginu. „Enda er þetta gott lag. Enginn hefur sagt neitt beint við okkur, en við vitum af umræðum á netinu. Pælingin var að gera algjöra eftirlíkingu af myndbandi Justins Bieber, en alls ekki að það yrði niðrandi fyrir stelpur. Við munum spá í þetta í framtíðinni, það er á hreinu.“ Ari segir að myndbandið hafi farið hina vanalegu leið ritskoðunar innan skólans eins og annað útgefið efni, og engar athugasemdir hafi verið gerðar.
Þar ber honum og aðstoðarskólastjóra Versló, Þorkeli H. Diego, ekki saman. Þorkell segir að í þetta skiptið hafi nemendur farið alfarið framhjá stjórnendum og gefið myndbandið út ósamþykkt. „Við lítum ekki á þetta sem myndband á vegum skólans.“ Þorkell segir að í Versló sé boðið upp á valáfanga í kynjafræði og að reglulega séu fengnir fyrirlesarar til að fjalla um birtingarmyndir kynjanna í útgáfu og efni sem nemendur vinna að. „Gauramenning hefur verið áberandi í þessu efni, og það mundum við vilja sjá breytast svo að eðlilegra jafnvægi milli kynjanna verði ríkjandi. Skólayfirvöld eru að skoða hvort og hvernig þau muni bregðast við útgáfu þessa myndbands. Síðasta vika var lögð undir árshátíð svo að við erum að sjá þetta fyrst núna og viljum setjast yfir þetta og heyra hvað nemendum gekk til.“