fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Disney-stjarna segist þéna meira á klámi: „Ég er bara fullorðin kona sem elskar kynlíf“

Ritstjórn Bleikt
Fimmtudaginn 19. desember 2019 14:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi Disney-stjarnan Maitland Ward, 42 ára, segist ekki sjá eftir því að hafa byrjað í klámi. Hún segir að hún þéni meira í klámi heldur en hún gerði sem leikkona. Maitland lék Rachel McGuire í þáttunum Boy Meets World á Disney Channel.

„Þegar fólk segir: „Hún þurfti að byrja í klámi,“ þá hlæ ég, því þetta er góður hlutur og ég er að þéna meira núna,“ segir Maitland við Daily Beast.

„Ef þú hefðir talað við yngri og „hreinni“ mig þá hefði ég aldrei séð þetta fyrir mér.“

Maitland.

Maitland segir að hún hafi byrjað á því að deila djörfum myndum á Instagram og fékk þá neikvæð viðbrögð frá blaðafulltrúanum sínum.

„Ég var með blaðafulltrúa sem sagði mér að hætta að deila kynþokkafullu myndum. Hann sagði: „Þú verður ekki ráðin fyrir eitthvað ef þú gerir þetta. Um leið og þú verður 30-35 ára þá ráða þeir þig ekki fyrir eitthvað kynþokkafullt. Þú ættir að fara í áheyrnaprufu til að leika Disney mömmu,““ segir Maitland.

„Hann hélt að hann væri að gefa mér góð ráð en þetta var bara ekki mitt […] Ég vildi ekki leika Disney mömmu.“

Maitland naut mikilla vinsælda á tíunda áratugnum.

Maitland segir frá því hvernig hún þénar allt að 7,5 milljón krónur á mánuði sem er mun meira en hún gerði sem leikkona.

„Þetta er ruglað! Að verða klámstjarna á mínum aldri? Ég vil ekki stimpla mig sem eitthvað, ég er bara fullorðin kona sem elskar kynlíf.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 klukkutímum

Jón Örn í eigendahóp Markarinnar lögmannsstofu

Jón Örn í eigendahóp Markarinnar lögmannsstofu
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Giftu stjörnurnar sig á laun? – Stílisti kjaftaði af sér á rauða dreglinum

Giftu stjörnurnar sig á laun? – Stílisti kjaftaði af sér á rauða dreglinum
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Sérfræðingur hefur áhyggjur af innrásinni í Íran – „Útilokað að knýja fram stjórnarskipti með loftárásum“

Sérfræðingur hefur áhyggjur af innrásinni í Íran – „Útilokað að knýja fram stjórnarskipti með loftárásum“
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Allt að 30 ára bið eftir geðlæknisþjónustu – ,,Það ræður ekkert kerfi við þetta”

Allt að 30 ára bið eftir geðlæknisþjónustu – ,,Það ræður ekkert kerfi við þetta”
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Allt á suðupunkti og Trump heitir hefndum vegna þeirra sem létust

Allt á suðupunkti og Trump heitir hefndum vegna þeirra sem létust
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

Ingibjörg kom að syni sínum meðvitundarlausum eftir TikTok-áskorun

Ingibjörg kom að syni sínum meðvitundarlausum eftir TikTok-áskorun

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.