Sem fyrrverandi einkaþjálfari og fitnesskeppandi fæ ég reglulega spurningar varðandi þjálfun og mataræði. Ein algengasta spurningin sem ég fæ er: „Ég þarf að léttast um x mörg kíló, hvað á ég að gera?“ Það sem ég er farin að gera er að svara þessari spurningu með annarri spurningu, og hún er: „Af hverju viltu missa þessi kíló? Hvað mun breytast hjá þér við að missa þau?“ Oftast er lítið um svör, eða þá að svörin séu eitthvað um að einu sinni var hún svona mörg kíló og þá leið henni svo vel, eða að það sé bara flottara og skemmtilegra að vera grennri, lífið verði auðveldara og þar fram eftir götunum.
Að missa kíló mun ekki breyta hugsun þinni
En veistu hvað? Ef þér líður illa í eigin skinni núna, þá er enginn kílóamissir að fara að breyta því! Það sem þarf að breytast er fyrst og fremst hvernig þú hugsar um sjálfa þig. Ef þú elskar sjálfa þig og finnst þér þú vera manneskja sem er þess virði að elska, eigi skilið að líða vel og njóta lífsins, þá fyrst verður lífið skemmtilegra og auðveldara. Þá skiptir engu máli hvað þú ert mörg kíló. Og ég er ekki einu sinni að grínast. Það skiptir engu máli hvað þú ert mörg kíló! Kíló segja ekkert til um það hvort þú getir náð árangri í skóla eða starfi. Kíló segja ekkert til um það hvort þú getir verið góð vinkona, kærasta eða mamma. Kíló segja ekkert til um það hversu góð, fyndin og frábær manneskja þú getur verið.
Það er allt í lagi að vera með appelsínuhúð, slit og fitukeppi
Af hverju er búið að innprenta það svona inn í hausinn á okkur að við þurfum að líta út á ákveðinn hátt? Af hverju eru til meðferðir til að minnka appelsínuhúð, minnka slit, frysta fitu og svo mætti lengi telja (svo ég tali nú ekki um að allar þessar meðferðir eru markaðssettar fyrir konur, þó karlar fái líka alveg slit, appelsínuhúð og fitukeppi, en að einhverjum ástæðum er það ekki talið eins hræðilegt? Af hverju megum við ekki bara vera eins og við erum og það geti þótt fallegt, án þess að það sé verið að féfletta okkur endalaust með einhverjum „fegrunarmeðferðum“? Þetta er náttúrulega allt business. Business sem varð til vegna óöryggi kvenna. Ég vildi óska að allar konur tækju sig saman og myndu sniðganga þessar meðferðir fyrir fullt og allt, til þess að sýna í verki að það er bara allt í lagi að vera með appelsínuhúð, slit og fitukeppi hér og þar.
Fegrunarstaðlar innprentaðir í hug okkar frá fæðingu
En ég vil þó taka það fram að mér finnst ekkert að konum sem fara í slíkar meðferðir eða hafi farið einhvern tíma á ævinni (guilty!), enda er þetta eitthvað sem hefur verið innprentað í okkur frá fæðingu og það er bara alls ekki auðvelt að breyta þessum fegrunarstöðlum einn, tveir og bingó. En með tímanum getum við unnið á móti þessu, og orðið öruggar í eigin skinni, alveg sama hvað við erum mörg kíló eða hvernig áferð er á húðinni okkar.
Einnig finnst mér mjög mikilvægt að það komi fram að ég hvet að sjálfsögðu alla til að hugsa vel um heilsuna og hreyfa sig reglulega. Það er allt partur af því að elska sjálfan sig. Ef við komum vel fram við okkur og gerum hluti sem láta okkur líða vel, þá mun það skila sér í betri líðan. En þó þú sért í yfirþyngd, þá þýðir það samt ekki að þú hafir ekki fullan rétt á því að elska sjálfa þig alveg eins og þú ert akkúrat NÚNA. Og ef þú ert að reyna að léttast, þá finnst mér aðalatriðið vera að ástæðan fyrir því sé rétt. Það er að segja, að þú sért að léttast að heilsufarsástæðum, en ekki til að mæta útlitskröfum samfélagsins. Að þú sért að gera það fyrir þig, af því að þig langar það. Og þú vitir nákvæmlega AF HVERJU þig langar það.
Það sem ég legg til að þú gerir, næst þegar þú hugsar um að missa einhver kíló, er að spyrja sjálfa þig þessara spurninga. Af hverju viltu missa þessi kíló og hvað mun breytast í lífi þínu við að missa þau?
Færslan er skrifuð af Rósu Soffíu og birtist upphaflega á Lady.is