Bandaríski gamanleikarinn Eddie Murphy á von á sínu tíunda barni í desember með kærustu sinni, Paige Butcher. Afþreyingarmiðillinn ET greindi fyrst frá þessu en orðrómar um nýja erfingjann spratt fyrst upp þegar sást til Butcher á dögunum með útþaninn maga.
Þau Murphy og Butcher hafa verið saman í sex ár og eiga hina tveggja ára gömlu Izzy, en fyrir á gamanleikarinn átta börn úr fjórum öðrum samböndum.
Murphy varð fyrst faðir árið 1989 og átti hann þá dótturina Briu með fyrrum eiginkonu sinni, Nicole Mitchell. Á því sama ári eignaðist hann soninn Eric með Paulette McNeely. Ári seinna eignaðist hann annan son, Christian, með fyrrverandi kærustu sinni, Tamöru Hood. Allt í allt eignuðust þau Nicole fimm börn, en ásamt Briu má nefna þau Myles, Shayne, Zolu og Bellu Zahra. Eignaðist hann líka stúlkuna Angel Iris með Kryddpíunni Melanie Brown utan hjónabands.
Gamanleikarinn segir í samtali við ET að börnin séu skærasta ljósið í lífi hans en bætir léttlyndur við að ekkert barnanna hans sé orðið svo gamalt, enda ekkert þeirra skriðið á fertugsaldurinn enn.
„Allur heimur minn snýst í kringum þessi börn,” segir hann.
„Þetta er það náttúrulegasta sem til er.”