fbpx
Laugardagur 28.mars 2026

Sylvía: „Við viljum ekki að barnið okkar fari að halda í sér og reyna að kúka ekki“

Ritstjórn Bleikt
Fimmtudaginn 4. maí 2017 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það situr svo fast í mér atvik sem að átti sér stað á biðstofu þegar Anna Hrafnhildur var mánaðargömul. Þar var foreldri með barnið sitt sem var sennilega á milli eins og tveggja, barnið var búið að kúka og eins og flestir foreldrar vita að þá er þetta ekki beinlínis það skemmtilegasta sem við gerum að taka kúkableyjur. En hvernig foreldrið brást við stakk mig svo mikið, það sem foreldrið sagði var „æjhh ohhh ertu búin að kúka núna?“ barnið fór alveg í hnút og bakkaði frá og brást við með því að segja „nei nei nei enginn kúkur“ með skömm og tár í augum. Foreldrið tók barnið í svona hálfgerðum pirring og fór með það inn á klósett.

Myndin tengist greininni ekki beint…

Það sem ég fór að hugsa eftir á er að það skiptir svo máli hvernig við bregðumst við hlutum sem börn mega alls ekki skammast sín fyrir. Við viljum ekki að barnið okkar fari að halda í sér og reyna að kúka ekki eða finni alltaf fyrir þessari skömm þegar það þarf að kúka og verði smeyk við viðbrögð foreldra.

Ég hafði aldrei pælt í þessu og fór svo að taka eftir fleiri tilvikum þar sem börnin fóru alveg í hnút því það kom svo oft þetta „ohh“. Auðvitað er fullt af börnum sem finna fyrir einhverri skömm eða fara hjá sér þegar þau kúka án þess að það sé eitthvað sem foreldrarnir geri vitlaust, en það skiptir líka bara máli hvernig við bregðumst við hlutunum, einhverju sem okkur finnst svo saklaust og pælum ekki í gæti setið í börnunum okkar og haft varanlegar afleiðingar í framtíðinni.

Ég tók þetta allavega til mín og ákvað að passa vel uppá það hvernig ég myndi bregðast við þegar barnið mitt væri búið að kúka, eins bað ég ömmur og afa að hafa það líka í huga. Frekar að hrósa og segja barninu að það hafi verið duglegt og þá er það líklegra til að láta þig vita þegar það þarf að kúka eða er búið að kúka. Þetta er allavega mín reynsla og mér finnst þetta virka mjög vel.

Þessa dagana kíkir Anna á alla bangsa og dúkkur og gáir hvort að þau séu búin að kúka. Klappar oft lófum saman og biður mig um nýja bleyju á þau. Fyrir henni er þetta eðlilegasti hlutur og þannig á það að vera.


Höfundur: Sylvía Haukdal Brynjarsdóttir

Greinin birtist fyrst á Ynjum

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Með bikarinn til sýnis þó það sé búið að svipta þá honum

Með bikarinn til sýnis þó það sé búið að svipta þá honum
Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Fráskilinn og stórskuldugur eftir að hann prófaði ChatGPT – „Guð minn góður. Hvað gerðist?“

Fráskilinn og stórskuldugur eftir að hann prófaði ChatGPT – „Guð minn góður. Hvað gerðist?“
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Þorgerður Katrín tekur snúning á kommentakerfinu – „Ég var reyndar í brjóstahaldara“

Þorgerður Katrín tekur snúning á kommentakerfinu – „Ég var reyndar í brjóstahaldara“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Léku fyrsta landsleikinn í tæp sjö ár – Stöðugt dregið sig úr keppni af ótta við að leikmenn sæki um hæli annars staðar

Léku fyrsta landsleikinn í tæp sjö ár – Stöðugt dregið sig úr keppni af ótta við að leikmenn sæki um hæli annars staðar
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Íþróttavikan: Adam Páls og Jónatan Ingi – Er umræðan um Val á villigötum?

Íþróttavikan: Adam Páls og Jónatan Ingi – Er umræðan um Val á villigötum?
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja
Fókus
Fyrir 18 klukkutímum

Gagnrýnir vandræðalegan nýjan veruleika kynlífssena

Gagnrýnir vandræðalegan nýjan veruleika kynlífssena
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Óprúttnir aðilar við Reðasafnið: Reyndu að stela risastórum steinlim – „Voru í vandræðum með að ná honum upp“

Óprúttnir aðilar við Reðasafnið: Reyndu að stela risastórum steinlim – „Voru í vandræðum með að ná honum upp“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.