

Æðidrengurinn Patrekur Jaime deilir 5 lífsráðum sem hann hefur lært á sinni 26 ára ævi með fylgjendum sínum á TikTok.
„Númer er eitt er: ekki spara og alls ekki kaupa þér íbúð, það er smá pick me að eiga íbúð tvítugur og þú getur alltaf gift þig fyrir peninga. En það er ógeðslega leiðinlegt að spara.“
Segir Patrekur Jaime að það sé númer eitt að lifa lífinu.
„Númer tvö: Ef þig langar að halda framhjá gerðu það bara. Ef þú ert hvort sem er að hugsa um það, tala við einhvern, gerðu það bara. Þetta verður allt í lagi.“
Númer þrjú að mati Patreks Jaime er að slúðra ógeðslega mikið. „Og ef þú ert gripinn við það segðu bara: „Guð sorrí ég hefði ekki átt að segja þetta“, og svo heldurðu bara áfram. Þú veist ekki læra af mistökunum, það skiptir engu máli. Það slúðra allir, þannig að gerðu það bara ótrúlega mikið.“
„Númer fjögur er: Sofðu hjá einhverjum ógeðslegum. Það er ógeðslega fyndið að geta rifjað það upp: OMG ég trúi ekki að ég svaf hjá þessum. Eða þú ert að hitta einhvern sem er ógeð.“
Segir Patrekur Jaime það verða skemmtilega minningu til að rifja upp. „Mér finnst það ógeðslega fyndið og ég elska að gera grín að vinkonum mínum sem hafa sofið hjá einhverjum ógeðslegum.
Fimmta ráðið sem Patrekur Jaime hefur lært að lenda í einhverju áfalli.
„Ég held það hafi allir gott af því að fá smá trauma, ekki einhverju hræðilegu bílslysi heldur keyra bara utan í eitthvað eða keyra út af, svona létt út af.“
Segir hann það byggja upp sjálfstraustið undir stýri.
„Ok, period.“
@patrekurjaimee 5 Life hack sem ég er búinn að læra á 26 árum með ég borða trítla 💕✨ #íslenskt #fyp #fyrirþig #samstarf @Nói Síríus ♬ Yacht Club – MusicBox