

Leonid fæddist í Úkraínu árið 1982 en hann festi kaup á móðurfélagi OnlyFans árið 2018 í gegnum félag sitt, Fenix International.
Hann var eini hluthafi fyrirtækis síns og var búsettur í Flórída ásamt eiginkonu sinni og börnum.
Hann keypti OnlyFans tveimur árum eftir að bresku feðgarnir Guy og Tim Stokely stofnuðu vefinn. Segja má að hann hafi gert kaupin á hárréttum tíma því vinsældir hans fóru hratt vaxandi á tímum heimsfaraldursins.
Þótt OnlyFans bendi á að ekki allt efni á síðunni sé af kynferðislegum toga er almennt viðurkennt að hraður vöxtur hennar sé að mestu tilkominn vegna klámefnis sem notendur búa til sjálfir.
Efnishöfundar á OnlyFans geta birt myndbönd og ljósmyndir bak við greiðsluvegg sem áskrifendur greiða mánaðarlegt gjald fyrir aðgang að. Höfundar geta einnig aflað tekna með þjórfé og svokölluðu „pay-per-view“-efni.
Árið 2019 voru tekjur OnlyFans 238 milljónir punda en árið 2023 höfðu þær aukist upp í 5,3 milljarða punda.
Í október 2025 var hrein eign Leonid metin á 7,8 milljarða Bandaríkjadala samkvæmt lista Forbes yfir milljarðamæringa í heiminum.