fbpx
Föstudagur 13.febrúar 2026
Fókus

Sálfræðitryllirinn Röskun er fyrsta íslenska mynd ársins

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 08:27

Mynd: Skjáskot YouTube.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrsta íslenska mynd ársins, sálfræðitryllirinn Röskun, verður frumsýnd 19. febrúar. Myndin er byggð á samnefndri bók Írisar Aspar Ingjaldsdóttur sem kom út árið 2019. 

Myndin gerist í Reykjavík og fjallar um lögfræðinginn Heru sem er að jafna sig eftir áfall og flytur í kjallaraíbúð í gömlu húsi til að hefja nýtt líf. Íbúðin á sér hins vegar sögu og skömmu eftir að Hera flytur inn finnur hún fyrir óþægilegri nærveru í íbúðinni. Hún veit ekki hvort eigið ofsóknarbrjálæði og áfallastreita sé þar að verki eða konan sem bjó áður í íbúðinni og var myrt af sambýlismanni sínum sé að ásækja hana.

Stikluna má sjá hér. 

Með aðalhlutverk fer Þuríður Blær Jóhannsdóttir og meðal annarra leikara eru Unnur Birna Backmann, Arnar Dan Kristjánsson, Kolbeinn Arnbjörnsson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir.

Bragi Þór Hinriksson leikstýrir og Helga Arnardóttir skrifaði handritið. Þau eru jafnframt  framleiðendur myndarinnar fyrir hönd H.M.S. Productions ásamt Valdimar Kúld. Síminn er meðframleiðandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fer úr FH í Hauka
Fókus
Í gær

Sankar að sér hlutum eftir skilnaðinn – „Ég hætti að bjóða fólki í heimsókn“

Sankar að sér hlutum eftir skilnaðinn – „Ég hætti að bjóða fólki í heimsókn“
Fókus
Fyrir 2 dögum

George Lucas afsalaði Star Wars fyrir klink – Myndir hans hefðu orðið allt aðrar ef fyrstu hugmyndir hefðu orðið að veruleika

George Lucas afsalaði Star Wars fyrir klink – Myndir hans hefðu orðið allt aðrar ef fyrstu hugmyndir hefðu orðið að veruleika
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu Super Bowl auglýsingarnar 2026 – Rándýr stjörnum prýdd auglýsingapláss

Sjáðu Super Bowl auglýsingarnar 2026 – Rándýr stjörnum prýdd auglýsingapláss
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einbýlishús með leynisundlaug til sölu í Mosfellsbæ

Einbýlishús með leynisundlaug til sölu í Mosfellsbæ