fbpx
Föstudagur 13.febrúar 2026
Fókus

Hreyfispjöld til heilsueflingar – Æfingar sem hægt er að gera hvar sem er

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 09:22

Mynd: Forlagið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýstárlegur stokkur er kominn út sem inniheldur 50 spjöld með jafnmörgum æfingum. Um er að ræða 50 einfaldar og fjölbreyttar styrktar- og liðleikaæfingar sem auka kraft, þol og jafnvægi. Hverri æfingu fylgja myndir og skýrar leiðbeiningar. Æfingarnar eru framkvæmdar án áhalda og þær er hægt að gera hvar sem er. Hreyfispjöldin henta fólki á öllum aldri, byrjendum jafnt sem lengra komnum.

Höfundar spjaldanna eru þær Anna Björg Björnsdóttir og Gerður Jónsdóttir, heilsu- og íþróttafræðingar sem báðar eru með meistaragráðu og víðtæka reynslu af íþróttum, kennslu og þjálfun. Þær eru báðar fyrrverandi afreksíþróttakonur og hafa starfað um árabil að heilsueflingu barna og fullorðinna.

Anna Björg er fyrrum knattspyrnukona en starfar í dag sem íþróttakennari í grunnskóla. Gerður Jónsdóttir er fyrrverandi fimleikakona og bardagaíþróttakona.  Hún er stofnandi þjálfunarkerfisins InShape, sem hefur vakið mikla athygli fyrir faglega, fjölbreytta og skemmtilega nálgun á hreyfingu.

DV birtir með leyfi höfunda og Forlagsins eitt spjald með æfingu og annað spjald með æfingu dagsins. Slíkar eru nokkrar í stokknum, með tillögu að æfingaröð sem taka má saman. Svo má einnig draga spjöld handahófskennt og taka lauflétta æfingu við skrifborðið.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fer úr FH í Hauka
Fókus
Í gær

Sankar að sér hlutum eftir skilnaðinn – „Ég hætti að bjóða fólki í heimsókn“

Sankar að sér hlutum eftir skilnaðinn – „Ég hætti að bjóða fólki í heimsókn“
Fókus
Fyrir 2 dögum

George Lucas afsalaði Star Wars fyrir klink – Myndir hans hefðu orðið allt aðrar ef fyrstu hugmyndir hefðu orðið að veruleika

George Lucas afsalaði Star Wars fyrir klink – Myndir hans hefðu orðið allt aðrar ef fyrstu hugmyndir hefðu orðið að veruleika
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu Super Bowl auglýsingarnar 2026 – Rándýr stjörnum prýdd auglýsingapláss

Sjáðu Super Bowl auglýsingarnar 2026 – Rándýr stjörnum prýdd auglýsingapláss
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einbýlishús með leynisundlaug til sölu í Mosfellsbæ

Einbýlishús með leynisundlaug til sölu í Mosfellsbæ