fbpx
Föstudagur 13.febrúar 2026
Fókus

Hugh Jackman sagður hafa snúið baki við vini sínum

Fókus
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þeir hafa verið eins og malt og appelsín, leikaravinirnir Hugh Jackman og Ryan Reynolds, sem skemmtu aðdáendum sínum rækilega í kvikmyndinni Deadpool & Wolverine árið 2024. Nú mun Jackson þó hafa fengið nóg af faðrafokinu í kringum málaferli Reynolds og eiginkonu hans, Blake Lively, við leikstjórann Justin Baldoni.

Frá þessu greinir Globe sem hefur það eftir heimildarmanni að Jackman hafi verið óvenju þögull um vin sinn undanfarið. „Orðið á götunni er að hann hafi þurft að stíga út úr vinskapnum fyrir andlega heilsu sína.“

Þetta megi lesa á milli lína, en Jackson hafi hægt og rólega hætt að eiga samskipti við Reynolds og nú sé það svo að engum geti dulist það að Jackson kærir sig ekki um vinskapinn, að minnsta kosti ekki meðan á málaferlunum stendur.

Kvikmyndin It Ends With Us hefur heldur betur dregið dilk á eftir sér. Blake Lively fór með aðalhlutverkið á móti leikstjóranum, Justin Baldoni, en hefur sakað hann um áreitni á tökustað og skipulagða ófrægingarherferð. Baldoni hefur gripið til varna en hann segir að leikarahjónin, Reynolds og Lively, hafi reynt að gera út af við mannorð hans.

„Hugh vill ekki lenda í miðjunni á þessum stormi. Þó að hann sé vinur vina sinna þá hefur hann eins og aðrir sín mörk hvað varðar ljót málaferli,“ segir heimildarmaður.

Reynolds mun vera nokkuð sár yfir þessu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fer úr FH í Hauka
Fókus
Í gær

Sankar að sér hlutum eftir skilnaðinn – „Ég hætti að bjóða fólki í heimsókn“

Sankar að sér hlutum eftir skilnaðinn – „Ég hætti að bjóða fólki í heimsókn“
Fókus
Fyrir 2 dögum

George Lucas afsalaði Star Wars fyrir klink – Myndir hans hefðu orðið allt aðrar ef fyrstu hugmyndir hefðu orðið að veruleika

George Lucas afsalaði Star Wars fyrir klink – Myndir hans hefðu orðið allt aðrar ef fyrstu hugmyndir hefðu orðið að veruleika
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu Super Bowl auglýsingarnar 2026 – Rándýr stjörnum prýdd auglýsingapláss

Sjáðu Super Bowl auglýsingarnar 2026 – Rándýr stjörnum prýdd auglýsingapláss
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einbýlishús með leynisundlaug til sölu í Mosfellsbæ

Einbýlishús með leynisundlaug til sölu í Mosfellsbæ