fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
Fókus

Hamingjusamlega gift í 30 ár en á „neyðarsjóð“ sem eiginmaðurinn hafði ekki hugmynd um

Fókus
Föstudaginn 16. janúar 2026 07:00

Rowan Pelling. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breska blaðakonan og ritstjórinn Rowan Pelling hefur um áratugaskeið átt sparnaðarreikning sem hún hefur haldið leyndum frá eiginmanni sínum. Þetta gerir hún þrátt fyrir að hafa verið hamingjusamlega gift í 30 ár.

Pelling greinir frá þessu í nýjum pistli á vef Daily Mail.

Pelling segir að þetta snúast ekki um svik, heldur sjálfstæði, öryggi og „raunhæfa nálgun“ á lífið eins og hún orðar það.

Í pistlinum lýsir Pelling því hvernig hún greiðir stærstan hluta heimilisútgjalda en haldi eftir eigin varasjóði sem eiginmaður hennar hefur ekki haft vitneskju um.

Sparnaðurinn, sem hún kallar „flóttasjóð“, hafi verið hugsaður bæði sem öryggisnet fyrir fjölskylduna ef neyðarástand kæmi upp og sem persónulegt frelsi fyrir hana ef aðstæður breyttust skyndilega.

Pelling segir að á upphæðin á reikningnum hafi náð hámarki árið 2010, 20 þúsund pund, en í dag sé hún um 5.500 pund.

Í pistlinum vísar hún til nýrrar rannsóknar sem sýnir að allt að þriðjungur giftra einstaklinga yfir 65 ára aldri leyni einhvers konar fjármunum fyrir maka sínum, oftar en ekki töluverðum fjárhæðum. Þetta sé ekki bundið við eldri kynslóðir heldur endurspegli breytt viðhorf til fjárhagslegs sjálfstæðis innan hjónabanda.

Pelling segist sjálf reka þessa nálgun sína til uppeldis síns – móðir hennar, sem var þekkt fyrir sparsemi, hafi kennt henni að hver gift kona ætti að hafa aðgang að eigin neyðarsjóði.

Sú ráðlegging hafi fest sig í sessi eftir að Pelling upplifði sjálf fjárhagslegt ósjálfstæði snemma í hjónabandinu, þegar hún hafði hvorki eigin tekjur né aðgang að lausafé í neyð.

Í pistlinum lýsir hún einnig hvernig mismunandi bakgrunnur hennar og eiginmannsins mótar fjármálavenjur þeirra. Á meðan hún lítur á sig sem sparnaðarsinna þrátt fyrir fatakaup og ferðalög, hafi eiginmaður hennar eytt fé í áhugamál og safngripi. Þau hafi forðast sameiginlegan reikning frá upphafi, sem hún telur hafa dregið úr árekstrum.

Að lokum segist Pelling hafa sagt eiginmanni sínum frá leynisparnaðinum í fyrsta sinn þegar hún skrifaði pistilinn. Viðbrögð hans hafi verið jákvæð og skilningsrík. Hún telur reynsluna staðfesta þá sannfæringu sína að fjárhagslegt sjálfstæði geti styrkt hjónaband fremur en grafið undan því.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Spennandi teiknismiðjur með Cartoon Dave

Spennandi teiknismiðjur með Cartoon Dave
Fókus
Í gær

Moss-mæðgurnar njóta lífsins

Moss-mæðgurnar njóta lífsins
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vala Matt færir sig um set

Vala Matt færir sig um set
Fókus
Fyrir 2 dögum

Kærastan tók framhjáhaldsjátningum norska ólympíukappans illa – „Erfitt að fyrirgefa“

Kærastan tók framhjáhaldsjátningum norska ólympíukappans illa – „Erfitt að fyrirgefa“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Paul-bræður í hár saman útaf hálfleikssýningunni umdeildu – „Ég er alls ekki sammála þessari færslu“

Paul-bræður í hár saman útaf hálfleikssýningunni umdeildu – „Ég er alls ekki sammála þessari færslu“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Jón gerði könnun á Litla-Hrauni – „Þegar sjö rétta upp hönd, erum við þá ekki að gera eitthvað skakkt sem samfélag?”

Jón gerði könnun á Litla-Hrauni – „Þegar sjö rétta upp hönd, erum við þá ekki að gera eitthvað skakkt sem samfélag?”