fbpx
Miðvikudagur 25.mars 2026
Fókus

Nanna fór í hjáveituaðgerð og vildi ekki niðurgreiðslu – „Mér fannst það ekki rétt“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 25. mars 2026 12:30

Nanna Rögnvaldardóttir. Mynd: Forlagið/Gunnar Freyr Steinsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nanna Rögnvaldardóttir, rithöfundur og matardrottning, fór í mini-hjáveitu fyrir nokkrum árum og segir lífið hafa breyst eftir þá aðgerð.

„Ég hef frá því innan við tvítugt verið of feit. Ég leit ekki á þetta sem aukakíló heldur aðalkíló og var ekkert að gera til að losna við þau. Fyrir svona 10-12 árum þá hætti ég mest að borða sykur, sem virkaði nú ágætlega. Ég gat frestað sykursýkinni sem ég vissi að ég myndi fá. Svo var hún komin og ég var farin að finna fyrir ansi mörgum fylgikvillum af offitunni,“

segir Nanna í viðtali í Fullorðins. Segist hún ekki hafa vitað hvað hún ætti að gera, en hafi svo áttað sig á því að hún þyrfti að léttast.

„En ég vissi ekki hvað það myndi hafa í för með sér. Ég var búin að vera með kæfisvefn í mörg og svaf með svefnöndunartæki. Mér var sagt að í svona aðgerð hyrfi hann í mjög mörgum tilvikum og sykursýkin nánast lagst í dvala, blóðþrýsturinn myndi lækka.“

Nanna segist ekki hafa hugsað að fara á þyngdarstjórnunarlyf. „Ég vildi bara gera þetta almennilega. Ég vissi að þetta væri ákveðin áhætta. Ég var það þung og með það marga fylgikvilla að ég hugsa að ég hefði getað fengið þetta niðurgreitt að fullu, en mér fannst það ekki rétt. Ég hugsaði: Þetta er allt mér að kenna, mitt óholla líferni.“

Nönnu fannst því mátulegt þar sem hún átti fyrir aðgerðinni að hún greiddi hana sjálf. Segir hún aðgerðina sem hún fór í fyrir tveimur árum hafa hafa tekist vel.

„Mér fannst matur bara góður og var alltaf að gera tilraunir. Svo er ég ekkert fyrir matarsóun. Svo hreyfði ég mig voða lítið.“

Nanna segist hafa lést hratt strax eftir aðgerð og haldið áfram að léttast.

„Þangað til fyrir tæpu ári þá var ég komin þangað sem ég vildi vera, sem er eins og ég er núna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Jóhannes Haukur eftir Silfrið í gær: „Plís! Ég get ekki meir!!!“

Jóhannes Haukur eftir Silfrið í gær: „Plís! Ég get ekki meir!!!“
Fókus
Í gær

Heyrði hásinina slitna í sigurleiknum: „Þegar maður er miðaldra prófar maður allt sem er töff“

Heyrði hásinina slitna í sigurleiknum: „Þegar maður er miðaldra prófar maður allt sem er töff“
Fókus
Í gær

„Fókusinn á það hvað er að gerast í næsta húsi, hvort sem að það var að einhver væri orðinn ríkur eða einhver væri kominn í ræsið“

„Fókusinn á það hvað er að gerast í næsta húsi, hvort sem að það var að einhver væri orðinn ríkur eða einhver væri kominn í ræsið“
Fókus
Í gær

Sebastian – Íslandsfrumsýning á Stockfish í kvöld

Sebastian – Íslandsfrumsýning á Stockfish í kvöld
Fókus
Fyrir 4 dögum

Piparjónkudramað heldur áfram – Vonbiðill og meintur sigurvegari stígur fram

Piparjónkudramað heldur áfram – Vonbiðill og meintur sigurvegari stígur fram
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sóðaleg leyndarmál búningsherbergisins afhjúpuð – Vinsæll á skjánum en hrotti utan hans

Sóðaleg leyndarmál búningsherbergisins afhjúpuð – Vinsæll á skjánum en hrotti utan hans