

Page Six greinir frá því og hefur eftir heimildarmanni að nágrannar Meghan Markle og Harry Bretaprins í Montecito í Kaliforníu forðist hjónin.
„Þeir forðast þau,“ segir heimildarmaður á svæðinu. „Enginn vill vera séður með þeim.“
Afstaða nágrannanna er ekki vegna fjölda nýlegra frétta um hjónin, þar á meðal að Ted Sarandos, yfirmaður Netflix, hafi neitað að vera í símtölum við Markle án þess að lögmaður væri viðstaddur.
Heimildarmaðurinn segir að kaldar móttökur nágrannanna hafi verið í undirbúningi í mörg ár.
„Þetta er ekki hatur, þetta er bara aukin vitund um að þau eru fólk sem tekur án þess að gefa til baka. Það eru allir búnir að fá nóg af þeim.“
Heimildarmaður nátengdur hjónunum hefur aðra sögu að segja: „Þau eiga frábært samband við nágranna sína og elska samfélag sitt.“
Hjónin keyptu sér 14,65 milljóna dollara höll í Montecito árið 2020 eftir að hafa sagt skilið við konunglegar skyldur sínar og flutt til Kaliforníu. „Þau hafa sest að í kyrrlátu samfélagi sínu og vonast til að friðsældin verði virt fyrir nágranna þeirra, sem og þau sem fjölskyldu.“

Svæðið er heimili fjölmargra frægra einstaklinga, þar á meðal Oprah Winfrey, Katy Perry, Gwyneth Paltrow, Arianna Grande og Jennifer Aniston. Árið 2020 sagði Sharon Stone einn nágranna þeirra við Access Hollywood: „Veistu, það sem er svo frábært við þau er að þau komu ekki hingað til að lifa á samfélagi okkar, þau komu hingað til að vera hluti af samfélagi okkar.“
Sú skoðun virðist breytt meðal einhverra nágranna. Í desember 2024 sagði nágranninn Richard Mineards að Markle væri ekki „kostur“ fyrir svæðið í þýsku heimildarmyndinni „Harry: The Lost Prince“.
„Ég persónulega tel ekki að Meghan sé kostur fyrir samfélag okkar. Hún fer ekki út eða tekur þátt í samfélaginu,“ sagði hann. „Harry hefur að vissu leyti gert það, því hann er frekar hress, en Meghan virðist ekki sjást neins staðar. Og þú sérð hann ekki heldur.“