fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
Fókus

Líf Hawk Tuah-gellunnar sett á hliðina eftir rafmyntasvindlið – „Ég fór ekki út úr húsi svo mánuðum skipti“

Fókus
Þriðjudaginn 24. mars 2026 15:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Líf Haliey Welch breytti um stefnu eftir að myndband birtist af henni árið 202 í netþættinum Tim & Dee. Þar var Welch beðin um að svara spurningunni um hvað gjörsamlega tryllti karlmenn í rúminu. Welch svaraði því með óvenju grófum hætti og gaf til kynna að konur gætu gert karlmenn alveg vitlausa með því að hrækja á typpi þeirra. Þaðan kemur viðurnefni hennar, Hawk Tuah-gellan, en það er ensk ritun á hljóðinu sem fólk gefur frá sér þegar það hrækir.

„Þú verður bara að gera hawk tuah og hrækja á typpið á honum,“ sagði Welch eftirminnilega og svarið setti netið á hliðina sem þýddi að sjálfsögðu að næsta skref ungu konunnar væri að nýta sér frægðina og gerast áhrifavaldur. Adam var þó ekki lengi í paradís því örfáum mánuðum síðar var Welch sökuð um að hafa svikið fé úr fylgjendum sínum með rafmyntabraski. Hún stofnaði þá svokallaða jarmmynt (e. memecoin) sem fór með himnaskautum í nokkrar klukkustundir áður en allt hrundi til jarðar með tilheyrandi tjóni fyrir fjárfesta. Þekkt er að fólk noti jarmmynt í svindl sem kallast á ensku pump and dump sem á íslensku væri þá væntanlega dæla og losa. Það virkar þannig að virði jarmmyntarinnar er sprengt upp með því að dæla peningum inn á hana með samstilltum aðgerðum. Þegar toppnum er náð þá losa svikararnir sig við myntina og við það hríðfellur virðið en svikararnir stinga gróðanum í vasann. Var talið að svikararnir í tilviki Welch hafi grætt tæplega hálfan milljarð hver á svindlinu.

Sjá einnig: Hawk Tuah-gellan í klandri út af rafmyntabraski – „Þú stalst af mér ævisparnaðinum“

Welch opnar sig nú um hneykslið og eftirmála þess í viðtali, en þar tekur áhrifavaldurinn fram að hún hafi verið þolandi í málinu eins og aðrir. Óprúttnir aðilar hafi notað hana og blekkt. Hún hafi ekkert vitað fyrr en hún sá ásakanir um svik á TikTok.

„Ég opnaði TikTok og það næsta sem ég veit er, ó já, Hailey Welch er að fara í fangelsi. Ég hugsaði bara: Hvað gerði ég? Hvers vegna er ég á leið í fangelsi?“

Hún hafi strax frá upphafi verið samvinnuþýð við lögreglu og veitt þeim fullan aðgang að raftækjum sínum. Hún hafi svo verið hreinsuð af öllum grun en skaðinn hafi þá þegar verið skeður.

„Þetta er nóg til að valda manni áfalli. Ég fór ekki út úr húsi svo mánuðum skipti,“ sagði Welch og sagði að þetta hefði verið verri reynsla en að verða fræg fyrir hrækjuhljóð.

„Að þessu sinni var ég farin að fá líflátshótanir og slíkt. Fólk var að segja að ég skuldaði þeim allan þennan pening og ég bara: Ég gerði ekkert, og ég þurfti bara að sitja og fá yfir mig allan skítinn fyrir þetta. Þetta var erfitt. Þetta er einn af þessum hlutum þar sem maður þarf að lúta höfði þegar maður stígur út af heimili sínu. Ég óska engum slíks. Frá mínum bæjardyrum séð myndi ég telja að ég hefði verið blekkt til að gera eitthvað sem ég vissi bara ekkert um. Maður verður að fara mjög varlega með hvað maður setur nafn sitt við.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Óvænt uppákoma í gærkvöldi þegar leikhúsgestur ákvað að siða leikarana til – „Þú kemur ekki á næstu sýningu“

Óvænt uppákoma í gærkvöldi þegar leikhúsgestur ákvað að siða leikarana til – „Þú kemur ekki á næstu sýningu“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Staðin upp eftir fallið

Staðin upp eftir fallið
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ragnhildur hraunar af kaldhæðni yfir mjónulúkkið sem er að ryðja sér til rúms – „Hvetur líka feitabollurnar til að hora sig niður“

Ragnhildur hraunar af kaldhæðni yfir mjónulúkkið sem er að ryðja sér til rúms – „Hvetur líka feitabollurnar til að hora sig niður“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þekkt tónlistarkona gerði óhugnanlega uppgötvun á heimili sínu – Sjáðu myndbandið

Þekkt tónlistarkona gerði óhugnanlega uppgötvun á heimili sínu – Sjáðu myndbandið