Hjónin Ása Steinars, ferðaljósmyndari, og Leo Alsved, stofnandi ferðaþjónustufyrirtækisins Vanlife Iceland, eiga von á sínu öðru barni, syni á næstu vikum. Fyrir eiga þau soninn Atlas sem fæddist í byrjun árs 2022.
Ása fór í óléttumyndatöku við eina af náttúruperlum Íslands, Skógafoss og deildi myndunum á samfélagsmiðlum sínum.
„Falleg kvöldstund við Skógafoss. Ég er gengin 32 vikur og á aðeins átta eftir. Ég trúi því varla að sumarið hafi komið þetta snemma til Íslands. Allt er þegar grænt og í fullum blóma sem gerir mig svo glaða. Jafnvel lúpínurnar eru í fullum blóma.
Lífið hefur verið einstaklega fallegt að undanförnu, rólegar og sólríkar stundir með vinum og fjölskyldu, kvöldverðir utandyra, berfætt í grasinu. Ég er svo spennt fyrir öllu því sem er fram undan.”