fbpx
Fimmtudagur 05.júní 2025
Fókus

FM95Blö rýfur þögnina – „Þetta eru búnir að vera skrítnir dagar“

Fókus
Þriðjudaginn 3. júní 2025 14:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Strákarnir í útvarpsþættinum FM95Blö harma troðninginn og uppþotið sem átti sér stað á fermingartónleikum þeirra á laugardaginn, en um 15 manns þurftu að leita á bráðamóttöku eftir að hafa troðist undir. Fjöldi gesta lýsti skelfingarástandi á samfélagsmiðlum eftir tónleikana og hafa aðstandendur viðburðarins verið gagnrýndir fyrir slæmt skipulag.

Sjá einnig: Gríðarlegur troðningur og slagsmál á tónleikum FM95BLÖ í Laugardalshöll – „Ég er að deyja“ – Migið á gólfið

Þeir Auðunn Blöndal, Egill Einarsson og Steinþór Hróar Steinþórsson segjast í nýjasta þætti Blökastsins harma hvernig fór. Auðunn segir:

„Þetta er öðruvísi í dag því að vanalega þegar við mætum hérna í þennan klefa þá erum við í gír og í stemningu. Já, og þetta eru búnir að vera skrítnir dagar og í rauninni bara ömurlegt. Við ætlum að koma því bara strax á framfæri að ástæðan fyrir því að við höfum ekki svarað neinu, það er hérna búið að vera að spyrja: Af hverju svarið ekki fjölmiðlum, og eitthvað. Við vildum bara ekki gera það í flýti. Við vildum vita nákvæmlega hvað gerðist á tónleikunum og erum bara svona að fá þetta allt staðfest núna þannig að við gátum ekki farið að svara á sunnudegi því við vissum ekki nákvæmlega hvað gerðist.“

Þeir hafi frétt af meiðslum og troðningi morguninn eftir tónleikana. „Ég ætla rétt að vona að það haldi enginn að við séum ekki gjörsamlega miður okkar að það hafi fólk slasast á okkar viðburði,“ segir Auðunn og tekur fram að undanfarna daga hafi þeir félagar verið að setja sig í samband við þá sem slösuðust.

„Við erum búnir að heyra í nokkrum og erum að reyna að heyra í öllum.“

Sjá einnig: Skotið fast á Audda Blö vegna troðningsins um helgina – „Bad lúkk að vera að monta sig“

Steinþór tekur fram að það sé í forgangi hjá þeim að fá að hreynt hvað fór úrskeiðis. Nordic live events sé nú að skoða málið með lögreglu og slökkviliði og FM95Blö bíður nú eftir skýrslu í málinu. „Því við í rauninni vitum ekkert sjálfir. Þannig það er voðalega lítið hægt að segja í rauninni nema að við hörmum þetta. Þetta er bara hræðilegt.“

Auðunn segir að þeir hafi tekið því nærri sér að fólk hafi slasað sig og upplifað skelfingu. „Og það er eitthvað sem við hörmum og biðjumst innilegrar afsökunar á.“

Þeir segjast vona til að hægt sé að draga lærdóm af málinu svo þetta endurtaki sig ekki næst þegar það er stór viðburður í Laugardalshöllinni.

„Og bara aftur, við hörmum þetta og þykir þetta ofboðslega leiðinlegt,“ segir Auðunn.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Árni Björn klessti á vegg og endaði á sjúkrahúsi

Árni Björn klessti á vegg og endaði á sjúkrahúsi
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Karlar sem taka virkan þátt í umönnun barna eru heilbrigðari, lifa lengur og eru andlega stabílli“

„Karlar sem taka virkan þátt í umönnun barna eru heilbrigðari, lifa lengur og eru andlega stabílli“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram – Glæsilegir kjólar og skór sem er hægt að útskýra

Vikan á Instagram – Glæsilegir kjólar og skór sem er hægt að útskýra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sara upplifði verstu martröð foreldra – „Hann virðist hafa upplifað þetta sem ástarsamband milli sín og litlu dóttur minnar“

Sara upplifði verstu martröð foreldra – „Hann virðist hafa upplifað þetta sem ástarsamband milli sín og litlu dóttur minnar“