fbpx
Laugardagur 14.júní 2025
Fókus

9 ára stúlka gekk út í myrkrið og sást aldrei aftur – Hvaðan kom dularfulla bókin?

Fókus
Föstudaginn 13. júní 2025 08:00

Myndir frá FBI. Myndin til hægri er tölvumynd og reiknað er með að Asha myndi líta svona út í dag.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var að morgni 14. febrúar árið 2000 þegar fjölskylda í smábænum Shelby í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum vaknaði við martröð sem aldrei lauk.

Asha Degree, níu ára gömul, hafði horfið sporlaust úr rúminu sínu að nóttu til. Það voru engin merki um að eitthvað saknæmt hefði átt sér stað, heldur virtist hún einfaldlega hafa farið sjálfviljug út.

Leitin hófst strax og fljótlega komu fram vitni sem sögðust hafa séð litla stúlku ganga eina eftir þjóðveginum rétt fyrir klukkan fjögur um nóttina, rúmum tveimur kílómetrum frá heimili hennar. Einn ökumaður sagðist hafa reynt að tala við hana en sagði að hún hafi þá hlaupið út í skóginn. Það var rok, rigning og svartamyrkur umrædda nótt.

Asha fannst ekki og engin merki um hana þrátt fyrir umfangsmikla leit. Það var ekki fyrr en ári síðar sem bakpoki hennar fannst, grafinn í plastpoka í skurði um 40 kílómetra frá heimili fjölskyldunnar. Í pokanum voru föt, leikföng og bók af bókasafni skóla Öshu, en foreldrar hennar sögðu að hvorki hún né þau fengu hana að láni.

Bókin var McElligot‘s Pool eftir Dr. Seuss. Þetta er klassísk barnabók sem fjallar um ímyndunaraflið, vonina og þrautseigju. Í bókinni ímyndar sér drengur að hafið gæti verið tengt við litla pollinn sem hann er að veiða úr og þar með gætu allar mögulegar verur synt þar um. Þrátt fyrir að aðrir segi honum að það sé tilgangslaust heldur hann áfram að reyna.

Lögreglan hefur reynt að rannsaka bókina en ekkert gengið. Spurningar eins og: Hver tók hana á bókasafninu? Tengist bókin hvarfinu og ákvörðun Öshu að fara út um miðja nótt?

Nýjar vendingar eftir 25 ár

Ýmsar tilgátur hafa verið á sveimi um hvarf Öshu, eins og að ókunnugur aðili hafi lokkað hana út eða að henni hafi verið hótað af einhverjum sem hún treysti.

En enginn hefur getað útskýrt af hverju níu ára stúlka færi út í storm að nóttu til og hvernig hún gat horfið sporlaust.

FBI hefur nokkrum sinnum tekið málið upp á ný, síðast árið 2020, og skoðað nýjar vísbendingar og ábendingar, sumar þeirra tengjst sjaldgæfum barnabókum og öðru sem fannst í bakpoka Öshu.

Það var loksins eitthvað að gerast í rannsókninni í lok árs í fyrra og byrjun árs 2025. Dedmon fjölskyldan verið í brennidepli og fannst erfðaefni úr einni konunni í bakpoka Öshu. Meðlimir fjölskyldunnar eru taldir tengjast hvarfinu með einhverjum hætti en þrátt fyrir þessar nýju vísbendingar hefur engin formleg ákæra verið gefin út og rannsóknin heldur áfram. Fjölskyldan hefur neitað að tengjast hvarfi Öshu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Orlando Bloom eyddi fúlgum fjár í umdeilda læknismeðferð

Orlando Bloom eyddi fúlgum fjár í umdeilda læknismeðferð
Fókus
Fyrir 3 dögum

Klæðaburður Laufeyjar vakti athygli á Tony-verðlaununum

Klæðaburður Laufeyjar vakti athygli á Tony-verðlaununum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Björn Ingi á tímamótum: „Besta ákvörðun sem hægt er að taka“

Björn Ingi á tímamótum: „Besta ákvörðun sem hægt er að taka“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram – „Ódýrara að fara í bátsferð með vinkonunum en til sálfræðings“

Vikan á Instagram – „Ódýrara að fara í bátsferð með vinkonunum en til sálfræðings“