Miley átti að talsetja fyrir eitt aðalhlutverkið, persónuna Mavis Dracula, en var rekin vegna ljósmyndar af henni með typpaköku.
„Ég keypti kökuna í gríni fyrir afmæli kærasta míns og var rekin,“ rifjar Miley upp í hlaðvarpsþætti Monicu Lewinsky. Hún var á þeim tíma í sambandi með leikaranum Liam Hemsworth.
„Ég var aðalleikkonan í Hotel Transylvania en þeir ráku mig og önnur var fengin í hlutverkið, því ég gerði óviðeigandi brandara, en ég var átján ára. Þannig já, ég mátti vinna í barnamynd, en ég var ekki barn.“
Söng- og leikkonan Selena Gomez fékk hlutverkið í staðinn.
„Það sem mér fannst svo fáránlegt við þetta, að vera rekin fyrir að stilla mér upp með typpaköku, er að það eru typpakökur í öllum gæsapartýjum,“ segir hún.
„Það er hægt að kaupa hálsmen, bolla og rör og alls konar typpadót. Þetta var fáránlegt.“
Miley birti sjálf ekki myndina, heldur var bakpoka og myndavél hennar stolið og myndinni lekið í fjölmiðla.
Brottreksturinn hafði áhrif á Miley sem vann úr reynslunni með aðstoð sálfræðings.