fbpx
Fimmtudagur 12.júní 2025
Fókus

Þorvaldur vann á skrifstofu og var kominn á góðan stað – En þá sagði líkaminn stopp

Fókus
Miðvikudaginn 11. júní 2025 08:45

Þorvaldur Davíð Kristjánsson Mynd: Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorvaldur Davíð Kristjásson leikari segir lífsreynsluna hafa gert sig að betri leikara og hjálpað sér að njóta vinnunnar sinnar á nýjan hátt. Þorvaldur, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, segist árum saman hafa verið á rosalegu kapphlaupi og að honum hafi aldrei fundist neitt nógu gott.

„Það er bara nýlega sem mér finnst ég hafa náð að slaka almennilega inn í lífið og ná þar með að vera meira í augnablikinu, sem auðvitað gerir mann að betri leikara. Það er stór hluti af því að vera góður leikari að keyra sig inn í augnablikið og vera hér og nú. Ég var lengi framan af lífinu í rosalegu kapphlaupi og upptekinn af því að þurfa að standa mig vel og gleymdi því að slaka á. Ég var stundum eins og api í búri og fannst aldrei neitt nógu gott sem ég gerði og var að reyna að fylla inn í eitthvað gat í hjartanu. Lífið virkar oft þannig að það þröngvar manni í þá stöðu að þurfa að lifa í meiri núvitund og hætta í stöðugu kapphlaupi. Hvort sem það eru áföll eða annað sem neyðir mann til að byrja að hugsa hlutina upp á nýtt.“

Leiklistin kennt honum margt

Þorvaldur kom fyrst fram á sjónarsviðið þegar hann fór með hlutverk í söngleiknum Bugsy Malone árið 1997, útskrifaðist síðan úr hinum virta Juillard-leiklistarskóla árið 2011 og síðan hefur hann leikið í kvikmyndum á borð við Vonarstræti, Ég man þig og Svar við bréfi Helgu. Hann segir leiklistina hafa kennt sér margt.

„Maður þarf ekki að vera karakterinn sem maður er að leika, en maður getur leitað að sinni samsömunarhæfni og skoðað alls kyns hliðar á sjálfum sér. Mér finnst eitt það mesta sem leiklistin hefur gefið mér að geta sett mig í spor annarra og leitað að þessu Aristótelíska manneskjubarni í öllum. Við vorum öll einhvern tíma börn og í barninu er alltaf einhvers konar sakleysi. Það er gott að muna það þegar maður skoðar hegðun annarra og þá skilur maður betur af hverju fólk gerir það sem það gerir. Í leikhúsi og bíómyndum er oft verið að fara yfir dramatískasta tímabil í lífi karaktersins og þá er gott að skoða hvaðan manneskjan var að koma. Að vilja skilja og setja sig í spor annarra, sem er eins mennskt og það gerist. Leiklistin snýst í grunninn um að hjálpa fólki, setja sig í spor annarra og þjálfa eigin samkennd,“ segir Þorvaldur, sem segist njóta þess í botn að vinna við leiklistina eftir að hafa tekið sér frí frá faginu um tíma.

„Akkúrat núna finnst mér ég loksins geta leikið almennilega einfaldlega af því að ég hef lifað lengur og er með meiri lífsreynslu. Með henni kemur meiri dýpt og skilningur á mannlegu eðli. Ég byrjaði rosalega snemma og var í raun alltaf að leika hugmyndina mína af hlutverkinu og var kannski tæknilega góður, en var ekki búinn að fara sjálfur í gegnum hluti sem gerðu mér kleift að setja mig í spor karaktersins. Dýptin kemur með því að hafa farið sjálfur í gegnum hluti í lífinu, hvort sem það er að verða faðir, þurfa að upplifa sorg eða annað sem kennir manni nýja hluti og gefur manni algjörlega nýja sýn á lífið.”

Prófaði skrifstofulífið

Þorvaldur fékk um tíma nóg af því að leika og ákvað að fara að gera eitthvað allt annað en að stunda leiklist. Hann fór í MBA nám og fékk svo skrifstofustarf í alþjóðlegri stofnun í Stokkhólmi.

„Það hafði verið að gerjast með mér í langan tíma að gera eitthvað annað en að leika. Svo tók ég ákvörðun um að láta verða af því og eftir á að hyggja var það frábært, af því að ég hef aldrei haft meira gaman að því að leika en núna. Það var góð tilbreyting að prófa að gera eitthvað annað, en ég fann samt fljótt að þetta var ekki fyrir mig. Ég var þarna kominn með skrifstofu, skrifborð, tölvuskjá og upphækkanlegt borð og farinn að stýra verkefnum með fólki. En á endanum var ég kominn með brjósklos og of háan blóðþrýsting og á endanum varð mér augljóst að ég ætti að snúa aftur í leiklistina.”

Aftengjast algoriþmanum

Þorvaldur og Sölvi ræða í þættinum um aftengingu í nútímanum og það hvernig heilinn í okkur fær nánast aldrei frið til úrvinnslu:

„Það sem ég hef mestar áhyggjur af er að við séum að missa frjálsa hugsun á ákveðinn hátt. Með öllum þessum algoriþmum og öðru sem hugsar fyrir okkur. Að þessar græjur séu að taka ákvarðanir fyrir okkur og að það sé búið að hugsa öll næstu skref í okkar lífi. Það hræðir mig svolítið. En á sama tíma er ég líka  að reyna að vera bjartsýnn með þetta og sjá tækifærin og á endanum skila boð og bönn engu. En í mínum huga hefur aldrei verið mikilvægara að aftengja sig tækjunum og ná alvöru rými í heilann og hugsanirnar. Það hefur breytt lífi mínu að fara út að hlaupa og vera einn með hugsunum mínum mjög reglulega. Tími með sjálfum okkur þar sem við förum í gegnum langar hugsana-arkir hjálpa okkur að ná dýpt. Hjá mér gerist það þegar ég hleyp og ekki síst ef ég kemst út í náttúru þar sem ég helst sé engar byggingar. Allt í hausnum á mér verður skýrara við það og striginn verður hreinn.”

Hægt er að nálgast viðtalið við Þorvald og öll viðtöl og podköst Sölva Tryggvasonar inni á solvitryggva.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Ótrúleg breyting: Hefur misst um 230 kíló og fékk loksins að fjarlægja aukahúðina

Ótrúleg breyting: Hefur misst um 230 kíló og fékk loksins að fjarlægja aukahúðina
Fókus
Í gær

Umdeild kynlífsformúla útskýrir af hverju konur nenna ekki kynlífi á kvöldin – „Þetta mun gera marga karla brjálaða“

Umdeild kynlífsformúla útskýrir af hverju konur nenna ekki kynlífi á kvöldin – „Þetta mun gera marga karla brjálaða“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Orlando Bloom eyddi fúlgum fjár í umdeilda læknismeðferð

Orlando Bloom eyddi fúlgum fjár í umdeilda læknismeðferð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Klæðaburður Laufeyjar vakti athygli á Tony-verðlaununum

Klæðaburður Laufeyjar vakti athygli á Tony-verðlaununum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjaldséð sjón: Elsta dóttir Sharon og Ozzy Osbourne sem vildi ekki sviðsljósið

Sjaldséð sjón: Elsta dóttir Sharon og Ozzy Osbourne sem vildi ekki sviðsljósið
Fókus
Fyrir 2 dögum

Viktor er búinn að nota bótox í 10 ár og er ekki hættur – „Maður var einu sinni meira frosinn“

Viktor er búinn að nota bótox í 10 ár og er ekki hættur – „Maður var einu sinni meira frosinn“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Dóttir Völu Kristínar og Hilmis Snæs komin í heiminn

Dóttir Völu Kristínar og Hilmis Snæs komin í heiminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

ClubDub fær ekki að spila á þjóðhátíð – Forsendur samnings brostnar

ClubDub fær ekki að spila á þjóðhátíð – Forsendur samnings brostnar