Læknir varar við langtímaáhrifum lyfsins þegar það er notað í megrunarskyni og hvetur fólk til að halda sig við „hefðbundnari“ aðferðir fyrir þyngdartap heldur en að grípa í Ozempic.
Læknirinn Annette Bosworth, sem kallar sig Dr. Boz á YouTube, sagði að „Ozempic ætti ekki að vera leyfilegt í megrunarskyni.“
Hún sagði að eftir fimmtán ár mun fólk sjá að hún hafi haft rétt fyrir sér.
„Ozempic hefur ótrúleg áhrif á þyngdartap en það sem fólk áttar sig ekki á að það er ekki aðeins að missa fitu, heldur einnig vöðvamassa á mun meiri hraða en æskilegt er,“ segir hún.
„Það er erfitt, sérstaklega fyrir eldri einstaklinga, að ná tapaða vöðvamassanum aftur, nema með mjög öfgakenndum aðferðum.“