Systurnar Bella og Gigi Hadid, tvær af þekktustu fyrirsætum heims, tjáðu sig loks um fjölskylduleyndarmál á dögunum. Systurnar sendu frá yfirlýsingu þar sem fram kom að þær hefðu nýlega komist að því að þær ættu hálfsystur, hina 23 ára gömlu Aydan Nix.
Aydan er ávöxtur af stuttu ástarsambandi föður þeirra, Mohamed Hadid, við konu að nafni Terri Hatfield Dull árið 2001. Ástarsamband þeirra átti sér stað skömmu eftir að hjónabandi Mohamed og Yolöndu Hadid, móður systranna, lauk sama ár.
„Fyrir meira en tuttugu árum átti faðir okkar, sem var þá einhleypur, í ástarsambandi við konu sem leiddi til getnaðar,“ sögðu systurnar í yfirlýsingunni.
Nix var alinn upp í Flórída og hélt að annar maður væri faðir hennar í 19 ár eða allt þar til sá maður féll frá. Þá ákvað hún að prófa að taka DNA-próf í forvitnisskyni og það leiddi til þess að sannleikurinn kom í ljós. Hadid-systur sögðu í yfirlýsingunni að þær hefðu vitað af tilvist Nix í rúmt ár og að þær systur hefðu þegar verið í sambandi.