fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Fókus

Óhugnanlegt trend á Óskarnum – Hefur Ozempic tekið yfir Hollywood?

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 4. mars 2025 09:29

Útlit stjarnanna vekur athygli.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhorfendur tóku eftir trendi á Óskarsverðlaunahátíðinni á sunnudagskvöld og þykir mörgum þetta einkar óhugnanlegt trend. Spurningin sem brennur á fólki er: Hefur Ozempic tekið yfir Hollywood?

Stjörnurnar virðast alltaf grennri og grennri og sífellt fleiri bætast í hóp þeirra tágrönnu. Þetta minnir óneitanlega á upphaf aldamóta þegar stærð 0 var eftirsóknarverð og Kate Moss lét þessi fleygu orð falla: „Ekkert bragðast jafn vel og að vera grönn.“

Árið 2023 var Jimmy Kimmel kynnir á Óskarnum og grínaðist með auknar vinsældir Ozempic. „Þegar ég horfi yfir salinn þá velti ég því fyrir mér… Er Ozempic málið fyrir mig?“

Nú eru tvö ár liðin og hafa nokkrar stjörnur stigið fram og viðurkennt að nota lyfið, en það virðist samt almennt ekki vera reglan og hefur það orðið til þess að aðdáendur velta vöngum yfir hvort hinn og þessi sé á þyngdarstjórnunarlyfi eða ekki.

Þegar stjörnurnar safnast saman á viðburðum eins og Óskarnum, eða SAG-verðlaunahátíðinni, verða svona trend áberandi og vakti útlit Demi Moore, Julianne Hough, Mindy Kaling, Cynthiu Erivo, Selenu Gomez, Ariönu Grande og Georginu Chapman sérstaklega athygli.

Mynd/Getty Images
Demi Moore. Mynd/Getty Images
Georgina Chapman með sínum heittelskaða, leikaranum Adrien Brody. Mynd/Getty Images
Mindy Kaling, nýrri myndin er til vinstri. Myndir/Getty
Julianne Hough. Mynd/Getty

Hvaða áhrif mun þetta hafa?

En það er vert að taka fram að engin þeirra hefur gengist við því að nota Ozempic eða sambærileg lyf og það geta aðrir þættir spilað inn í þyngdartap þeirra, eins og stress, veikindi og annað.

Aðdáendur hafa til dæmis ekki ásakað Ariönu og Cynthiu um að nota lyfið, en útlit þeirra hefur vakið miklar áhyggjur meðal aðdáenda. Sumir hafa einnig áhyggjur af því hvað breyttur líkami allra þessara stjarna merkir og hvaða áhrif þetta mun hafa á líkamsímynd kvenna og sérstaklega ungra stúlkna um allan heim. Erum við að fara að fara að sjá meira af megrunarkúrum, útlitsdýrkun og hættulegum leiðum til að léttast? Það er stóra spurningin.

Ariana Grande og Cynthia Erivo á Óskarnum. Mynd/Getty Images
Ariana árið 2018. Mynd/Getty Images
Cynthia árið 2017. Mynd/Getty Images

Sjá einnig: Nýjar myndir af stórstjörnunni valda miklum áhyggjum

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Líf Hawk Tuah-gellunnar sett á hliðina eftir rafmyntasvindlið – „Ég fór ekki út úr húsi svo mánuðum skipti“

Líf Hawk Tuah-gellunnar sett á hliðina eftir rafmyntasvindlið – „Ég fór ekki út úr húsi svo mánuðum skipti“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ragnhildur segir okkur þurfa að útrýma þessu heilkenni strax

Ragnhildur segir okkur þurfa að útrýma þessu heilkenni strax
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jóhannes Haukur eftir Silfrið í gær: „Plís! Ég get ekki meir!!!“

Jóhannes Haukur eftir Silfrið í gær: „Plís! Ég get ekki meir!!!“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Heyrði hásinina slitna í sigurleiknum: „Þegar maður er miðaldra prófar maður allt sem er töff“

Heyrði hásinina slitna í sigurleiknum: „Þegar maður er miðaldra prófar maður allt sem er töff“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Fókusinn á það hvað er að gerast í næsta húsi, hvort sem að það var að einhver væri orðinn ríkur eða einhver væri kominn í ræsið“

„Fókusinn á það hvað er að gerast í næsta húsi, hvort sem að það var að einhver væri orðinn ríkur eða einhver væri kominn í ræsið“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sebastian – Íslandsfrumsýning á Stockfish í kvöld

Sebastian – Íslandsfrumsýning á Stockfish í kvöld