fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Fókus

Hafþór birtir nýjar myndir sem hneyksla marga fylgjendur – „Þetta hefur gert þig 15 árum eldri“

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 20. febrúar 2025 15:30

Hafþór er vinsæll á samfélagsmiðlum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kraftakarlinn Hafþór Júlíus Björnsson, einnig þekktur sem „Fjallið“, birti af sér nýjar myndir sem hafa valdið fólki heilabrotum. Sumir segja að þær láti hann líta út fyrir að vera fimmtán árum eldri en hann er.

Myndirnar birti Hafþór á Instagram reikningi sínum. Þá fyrri eftir að hann rakaði sig nauðasköllóttan. Hina seinni eftir að hann tók allt nema yfirvaraskeggið af sér.

„Þetta hefur gert þig 15 árum eldri,“ er haft eftir einum netverjanum í frétt breska blaðsins The Sun um uppátækið.

Mynd/Instagram

„Ég vildi að það væri einhver leið fyrir mig að hafa aldrei séð þetta,“ sagði annar. Sá þriðji sagði þetta grábölvað og sá fjórði: „Þór maður, þú verður að hætta þessu.“

Hafþór, sem var sterkasti maður heims árið 2018, er mjög vinsæll á samfélagsmiðlum og hefur 4,3 milljón fylgjendur á Instagram. Býr hann til mikið af efni, bæði úr kraftasportinu og með eiginkonu sinni Kelsey Henson.

Mynd/Instagram

Ekki allir fylgjendur voru jafn hneykslaðir á breytingunni og þessir áðurnefndu. En Hafþór hefur hingað til yfirleitt skartað stuttu hári og skeggi.

„Best útlítandi 200 kílóa skegglausi maður í heimi,“ sagði einn í athugasemdum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Líf Hawk Tuah-gellunnar sett á hliðina eftir rafmyntasvindlið – „Ég fór ekki út úr húsi svo mánuðum skipti“

Líf Hawk Tuah-gellunnar sett á hliðina eftir rafmyntasvindlið – „Ég fór ekki út úr húsi svo mánuðum skipti“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ragnhildur segir okkur þurfa að útrýma þessu heilkenni strax

Ragnhildur segir okkur þurfa að útrýma þessu heilkenni strax
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jóhannes Haukur eftir Silfrið í gær: „Plís! Ég get ekki meir!!!“

Jóhannes Haukur eftir Silfrið í gær: „Plís! Ég get ekki meir!!!“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Heyrði hásinina slitna í sigurleiknum: „Þegar maður er miðaldra prófar maður allt sem er töff“

Heyrði hásinina slitna í sigurleiknum: „Þegar maður er miðaldra prófar maður allt sem er töff“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Fókusinn á það hvað er að gerast í næsta húsi, hvort sem að það var að einhver væri orðinn ríkur eða einhver væri kominn í ræsið“

„Fókusinn á það hvað er að gerast í næsta húsi, hvort sem að það var að einhver væri orðinn ríkur eða einhver væri kominn í ræsið“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sebastian – Íslandsfrumsýning á Stockfish í kvöld

Sebastian – Íslandsfrumsýning á Stockfish í kvöld