Rapparinn, sem heitir réttu nafni Rakim Athelaston Mayers, var sýknaður af ákæru um að hafa miðað byssu að örum karlmanni árið 2021 og skjóta tveimur skotum að honum. Um var að ræða gamlan vin rapparans og höfðu þeir eldað grátt silfur saman.
Rihönnu og Rakin var eðlilega létt þegar kviðdómur kvað upp úrskurð sinn því hann átti yfir höfði sér allt að 24 ára fangelsi. Rihanna og Rakim eiga saman tvö börn.
„Þakka ykkur öllum fyrir að bjarga lífi mínu,“ sagði Rakim við kviðdómendur eftir að dómur féll í málinu, en í kviðdómi voru sjö konur og fimm karlar.
Vinur rapparans var sagður hafa slasast lítillega á handlegg þegar skotið var að honum, en lögmaður Rakim sagði að það gæti ekki hafa gerst þar sem rapparinn hafi verið með leikfangabyssu umrætt sinn.