

Hún tók þátt í trendi sem er vinsælt á TikTok þessa dagana þar sem fólk deilir myndbandi og mynd sem voru tekin sama kvöld. Myndbandinu deildi fólk upphaflega í „private story“ á Instagram, semsagt aðeins sérvaldir vinir fengu að sjá það, oft eitthvað smá kjánalegt eða vandræðalegt, en myndin rataði beint í opið story sem allir gátu séð.
Sunneva birti efni frá kvöldi í París. Sjáðu myndbandið hér að neðan.
@sunnevaeinarsmind you this at a restautant..♬ FASHION ICON OUT JULY 24TH – ZØMB
Sunneva hefur verið vinsæll áhrifavaldur um árabil. Hún er með tæplega 78 þúsund fylgjendur á Instagram en hefur verið að hasla sér völl á TikTok undanfarið. Myndbönd hennar fá tugi þúsunda áhorfa og hefur fylgjendahópur hennar stækkað ört og er nú yfir 45 þúsund.