fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Fókus

Reynir Traustason fékk áfall um áramótin og ákvað að gera eitthvað í sínum málum – „Ég var með yfirbragð rúllupylsu“

Fókus
Mánudaginn 13. janúar 2025 16:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlamaðurinn Reynir Traustason lenti í því áfalli um áramótin að passa ekki lengur í föt sín. Hann ákvað því að byrja árið á langri föstu til að reyna að létta sig svo hann geti forðast þau heilsufarsvandamál sem stundum fylgja ofþyngd. Um er að ræða lengstu föstu sem Reynir hefur tekið á lífsleiðinni.

Rúllupylsa með plömmer

Reynir skrifar á Facebook í dag að hann sé nú búinn að fasta í 12 sólarhringa.

„Um áramótin var ég á mörkum þunglyndis og í volæði þegar ég uppgötvaði að ég komst ekki með góðu móti í fötin mín lengur. Beltið var komið í seinasta gat og þanið til hins ítrasta. Ég var með yfirbragð rúllupylsu, með plömmer og beran nafla. Eina huggunin var sú að ég hafði ákveðið í samráði við þekktan trúarleiðtoga að byrja árið á 15-20 daga föstu og ná þannig tökum á ástandinu.“

Reynir segist þaulvanur því að taka föstur, en hingað til hafði hann aðeins fastað í allt að viku. Nú er markið sett á 15 daga.

„Spurt er hvaða gagn er af föstunni. Svarið er að þar með hreinsast út gamalt frumudrasl og annar innvortis óþverri. Þá léttist ég um heil ósköp, andlega ekki síður en líkamlega.

Tilgangurinn með öllu þessu er ekki sá einn að verða krúttlegri í sjón og á velli. Þetta snýst um að forðast í lengstu lög þá sjúkdóma sem tengjast offitu og ólifnaði. Helstu heilbrigðisvandamál þjóðarinnar eru einmitt tengdir lífsstílssjúkdómum og ég forðast þann hóp. Og það er ekkert grín fyrir samfélagið þegar fólk étur á sig stíflaðar kransæðar. Eitt slíkt tilvik áunnins hjartaáfalls getur kostað heilbrigðiskerfið á bilinu 70 til 100 milljónir króna.“

Svona ætlar hann að viðhalda árangrinum

Reynir bendir á að það borgi sig eins að vera léttari á fæti þegar haldið er í fjallgöngur. Reynir segist lengi hafa tekist á við aukakíló sem hann hefur ítrekað losað sig við en fengið jafn harðan aftur. Hann hafi fengið ýmis ráð við þessu á borð við að fara í skurðaðgerð eða nýta sér þyngdarstjórnunarlyf. Reynir segist hræddur við slík úrræði og því halda sig við föstur og lífsstílsbreytingar. Hann viðurkennir að stærsta málið sé ekki að losna við kílóin heldur að halda þeim af sér. Hann ætlar að reyna að borða vel af grænmeti og draga verulega úr kjötneyslu og sykri. Framtíðin muni leiða í ljós hvort þessi aðferðafræði beri árangur.

„Annar og ekki síðri ávinningur er sá að vera léttari á fæti og sigrast á hæstu tindum. Það er strembið að kjaga upp hlíðar, með 20-30 kíló aukalega af fitu og vatni, og munar öllu að losa sig við þann farangur.
Ég hef fengið ótal ráð til þess að vinna gegn ófögnuðinum sem kemur aftur og aftur, svona eins og flóð og fjara. Þau eru allt frá því að fara í skurðaðgerð, svokallaða ermi, eins og margir hafa gert eða sprauta mig daglega með lyfi sem vinnur gegn sykursýki. Ég óttast hvoru tveggja og held mig við föstur og breyttan lífsstíl.

Vandinn er og verður aftur á móti sá að viðhalda batanum með réttu mataræði í framtíðinni. Þar er hugmyndin sú að lifa á grænmeti frá mánudegi til fimmtudags. Dagana þar á eftir verður fiski bætt inn í máltíðarnar. Einn kjötdagur verður í hverri viku. Sykur og hveiti eru bannvara og leyfist aðeins í undantekningatilvikum. Ein bakarísferð er leyfð á laugardegi eða sunnudegi.
Já, og nú kemst ég aftur í fötin mín. Sjáum svo til hvað gerist.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Líf Hawk Tuah-gellunnar sett á hliðina eftir rafmyntasvindlið – „Ég fór ekki út úr húsi svo mánuðum skipti“

Líf Hawk Tuah-gellunnar sett á hliðina eftir rafmyntasvindlið – „Ég fór ekki út úr húsi svo mánuðum skipti“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ragnhildur segir okkur þurfa að útrýma þessu heilkenni strax

Ragnhildur segir okkur þurfa að útrýma þessu heilkenni strax
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jóhannes Haukur eftir Silfrið í gær: „Plís! Ég get ekki meir!!!“

Jóhannes Haukur eftir Silfrið í gær: „Plís! Ég get ekki meir!!!“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Heyrði hásinina slitna í sigurleiknum: „Þegar maður er miðaldra prófar maður allt sem er töff“

Heyrði hásinina slitna í sigurleiknum: „Þegar maður er miðaldra prófar maður allt sem er töff“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Fókusinn á það hvað er að gerast í næsta húsi, hvort sem að það var að einhver væri orðinn ríkur eða einhver væri kominn í ræsið“

„Fókusinn á það hvað er að gerast í næsta húsi, hvort sem að það var að einhver væri orðinn ríkur eða einhver væri kominn í ræsið“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sebastian – Íslandsfrumsýning á Stockfish í kvöld

Sebastian – Íslandsfrumsýning á Stockfish í kvöld