Alex greinir frá þessu í fyrsta þætti af Call Her Alex, sem eru nýir heimildarþættir á Hulu um líf hennar.
Alex var í Boston-háskóla og spilaði þar knattspyrnu. Hún elskaði íþróttina og ætlaði að ná langt, en allt breyttist þegar Nancy Feldman varð þjálfari hennar. Næstu þrjú árin voru helvíti og þegar Alex reyndi að segja frá þá fékk hún þannig viðbrögð frá skólanum að hún þagði í áratug, þar til nú.
Alex segir að kynferðislega áreitnin hafi byrjað fyrsta skólaárið hennar, árið 2013 og verið allt til ársins 2015 þegar hún hætti í liðinu. Alex segir að Nancy hafi mjög snemma byrjað að sýna henni mun meiri athygli en hinum stelpunum. En athyglin snerist ekki um fótbolta eða getu Alex, heldur segir hún að Nancy hafi krafist svara um einkalíf Alex, hvort hún væri að stunda kynlíf og með hverjum og svo framvegis. Hún hafi reynt að eyða tíma með henni ein og snert læri hennar.
@fathercooperSince my documentary has been released it has become public that I was sexually harassed for three years by Nancy Feldman, my college soccer coach at Boston University. Nancy Feldman was someone I trusted. Someone I believed in. Someone who was supposed to help me grow. Someone who was supposed to protect me. But instead she made my life a living hell and abused her power over me. She stripped me of my identity and took away what I had worked my entire life for because she didn’t control herself. This defined my life for a decade and impacted her life 0%. I reported the abuse to the athletic director, Drew Marachello, and I was turned away and ignored. There was no accountability, no investigation, and no justice. So when I found out the harassment and abuse was STILL happening on that campus today – 10 years later by Nancy Feldman’s successor and my former assistant coach, I knew I needed to share my story. This is no longer just about me, this is systemic. When this initially happened to me I felt like I had no voice. But that is no longer the case. Now I’m coming for all of you who abused your power over innocent young individuals. Nancy Feldman, you will no longer be able to hide in the shadows and get away unscathed from the calculated pain you caused me and so many other women. To anyone who has also experienced what I have and been ignored… I am with you and this is DAY ONE of changing the system, flipping the script and finding justice. We will no longer be silenced. I’m ready to bulldoze through every fucking door for all of you out there. Because when I was 18 years old, dismissed and ignored by Boston University, I prayed and wished someone with a voice would have held my hand and helped me through the darkest time in my life. Daddy Gang, I got you. Stay tuned❤️♬ original sound – Alexandra Cooper
Þó Alex og foreldrar hennar hafi afhent yfirmanni íþróttadeildar í Boston-háskóla ýmis gögn til að styðja mál sitt hafi málið verið þaggað og engin rannsókn var gerð. Það þurfti heldur enginn að axla ábyrgð og fékk Nancy að starfa áfram. Alex endaði með að hætta í liðinu, enda var þetta henni mjög þungbært og ekki bættu viðbrögð skólans úr skák.
Alex sagði að hún ákvað að opna sig um þetta þegar hún frétti að áreitni væri enn að viðgangast í skólanum. Hún vill nota sinn kraft til að styðja við aðra brotaþola.
„Nancy Feldman var einhver sem ég treysti, sem ég hafði trú á,“ sagði hún í færslu á Instagram.
„[Hún var] einhver sem átti að passa upp á mig. En í staðinn gerði hún líf mitt að lifandi helvíti og misnotaði vald sitt gagnvart mér.“